Viðskipti

Tveir nýir stjórnendur taka sæti í framkvæmdarstjórn Bláa Lónsins
Efri röð frá vinstri:  Sigrún Halldórsdóttir, Helgi Júlíusson og Sigurður Long. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Þorsteinsson, Hildur Þórisdóttir og Jóhann Valur Sævarsson.
Mánudagur 17. ágúst 2026 kl. 10:08

Tveir nýir stjórnendur taka sæti í framkvæmdarstjórn Bláa Lónsins

Framkvæmdarstjórn Bláa Lónsins er nú fullskipuð í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar voru hjá félaginu fyrr í sumar og hafa ábyrgðarsvið innan hennar jafnframt verið endurskilgreind.

„Hér er saman kominn öflugur hópur með fjölbreytta reynslu og ólíkan bakgrunn. Við erum vel í stakk búin til að takast á við næsta áfanga. Fram undan er spennandi vegferð þar sem við ætlum að efla markaðssókn okkar,  þróa upplifun gesta áfram og sækja af krafti þau tækifæri sem felast í sterkri stöðu Bláa Lónsins. Ég hef mikla trú á þessu teymi og því sem við getum áorkað saman,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Helgi Júlíusson er framkvæmdastjóri fjármála (CFO).  Helgi hefur setið í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins frá árinu 2022, hann er með C.Sc. gráðu í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands, með M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Technical University of Denmark (DTU) og með MBA gráðu frá Cranfield School of Management, auk þess sem hann er með próf í verðbréfaviðskiptum.  Helgi var áður framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins Icelandic Tourism Fund og þar áður forstjóri Pennans. 

Hildur Þórisdóttir er framkvæmdastjóri mannauðs (CHRO).  Hildur er ný í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins en hún kemur til starfa frá Festi hf. þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri. Hildur er með B.A. í sálfræði og M.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.  Hildur hefur starfað við mannauðsmál um árabil, meðal annars hjá Straumi-Burðarás Fjárfestingabanka, Kviku banka, Mannviti og Lyfju.   

Jóhann Valur Sævarsson er framkvæmdastjóri sölu (CCO).  Jóhann er nýr í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins en hann kemur til starfa frá Icelandair þar sem hann starfaði sem forstöðumaður fyrirtækjaarkitektúrs, gagna og sjálfvirknivæðingar. Áður starfaði Jóhann Valur hjá Air Atlanta, WOW air og NOVA.  Jóhann er með B.Sc. gráðu í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í verkfræði frá Technical University of Denmark (DTU).

Sigrún Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrar (COO).  Sigrún hefur setið í framkvæmdastjórn Bláa Lónsins frá árinu 2020 sem framkvæmdarstjóri mannauðs. Í því hlutverki hefur hún unnið þvert á félagið og öðlast víðtæka yfirsýn yfir starfsemina. Hún er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.S. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands.  Áður en hún hóf störf hjá Bláa Lóninu gegndi hún hlutverki ráðgjafa á sviði rekstrar- og mannauðsmála. 

Sigurður Long er framkvæmdastjóri tækni (CTO).  Sigurður er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í upplýsingatækni frá ITU í Danmörku.  Sigurður hefur starfað hjá Bláa Lóninu síðan 2019 og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2020.  Hann var áður framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Olíuverzlunar Íslands hf. og starfaði hjá Össuri og Maritech síðar Wise ehf. 

Sigurður Þorsteinsson er framkvæmdastjóri hönnunar (CDO).  Sigurður er með BA gráðu og diplómu gráðu í iðnhönnun (Industrial Design) frá Istituto Europeo di Design, IED í Mílanó.  Sigurður rak eigið fyrirtæki á sviði hönnunar, branding og nýsköpunar, Design Group Italia I.D. S.r.l. í Mílanó sl. 28 ár.  Á þeim vettvangi starfaði hann fyrir Bláa Lónið allt frá árinu 1997 og nánast einvörðungu sl. fimm árin.  Samhliða sölu á fyrrnefndu fyrirtæki sínu á Ítalíu hóf Sigurður störf sem framkvæmdastjóri hjá Bláa Lóninu í fullu starfi á árinu 2022. 

Bláa Lónið hf. er móðurfélag öflugra fyrirtækja sem eru leiðandi hvert á sínu sviði og kjarnast um upplifunarferðaþjónustu, heilsu og vellíðan, húðvísindi og þróun sjálfbærra áfangastaða. Öll starfsemi okkar byggir á áralangri reynslu af rannsóknum, hönnun og nýsköpun með virðingu fyrir náttúrunni að leiðarljósi. Samspil vel mótaðra áherslna í hönnun og viðskiptum hefur staðsett dótturfélög okkar fremst í sínum flokki.

Bílakjarninn
Bílakjarninn