Viðskipti

Síðasti dieselbíll Kölku er til sölu
Mercedes-Benz eActros 400 er fullrafknúinn vörubíll með allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði og er hannaður fyrir krefjandi dreifingar- og flutningsverkefni. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 4. ágúst 2026 kl. 06:01

Síðasti dieselbíll Kölku er til sölu

Kalka tekur í notkun nýjan rafmagnsvörubíl

Kalka hefur tekið í notkun nýjan Mercedes-Benz eActros 400 rafmagnsvörubíl sem markar enn eitt skref fyrirtækisins í átt að umhverfisvænni og sjálfbærari starfsemi. Bíllinn er afhentur af Landfara ehf., umboðsaðila Mercedes-Benz Trucks á Íslandi, og er búinn 17 bretta vörukassa frá Kiesling ásamt tveggja og hálfs  tonna vörulyftu sem hentar vel fyrir fjölbreytt flutningsverkefni fyrirtækisins.

Mercedes-Benz eActros 400 er fullrafknúinn vörubíll með allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði og er hannaður fyrir krefjandi dreifingar- og flutningsverkefni. Með þessari fjárfestingu dregur Kalka enn frekar úr kolefnisspori starfseminnar og styður við þá stefnu fyrirtækisins að byggja upp hringrásarhagkerfi og lágmarka umhverfisáhrif í allri starfsemi.

Kalka hefur það að leiðarljósi að vera leiðandi í umhverfismálum á sviði úrgangsmeðhöndlunar á Íslandi. Umhverfisstefna fyrirtækisins byggir á ábyrgri meðhöndlun úrgangs, aukinni umhverfisvitund og sjálfbærum lausnum sem endurspegla gildi fyrirtækisins um hringrás, umhverfi og samfélag.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Við erum afar ánægð með að taka þetta mikilvæga skref að bæta fyrsta rafknúna vörubílnum af þessari stærð við flotann okkar. Rafvæðing flutninga fellur vel að framtíðarsýn Kölku og styður við markmið okkar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og byggja upp sjálfbærari starfsemi til framtíðar,“ segir Steinþór Þórðarson, framkvæmdastjóri Kölku.

Davor Lucic, rekstrarstjóri sorphirðu og endurvinnslustöðva, segir að verkefni fyrir svona bíl hafi smám saman verið að koma upp á yfirborðið. „Við byrjuðum fyrir 6 árum að stækka sendiferðabílinn okkar og nýta ferðir hans betur. Við vorum svo komin upp í stærstu gerð af sendiferðabíl og sáum tækifæri til að nýta ferðir enn betur. Við flytjum m.a. ýmis endurvinnsluefni sem safnast í Vogum og vonandi í Grindavík líka í framtíðinni. Bíllinn kemur sér líka vel í stærri afhendingar á tunnum og kerjum og í flutninga t.d. á textíl inn á höfuðborgarsvæðið. Þá er algengt að eitthvað sé til að taka til baka suðureftir. Það er mjög jákvætt að geta aukið nýtinguna á bílnum og á sama tíma þurrkað kolefnissporið alveg út“, segir Davor.

Kalka er með tvo minni sendiferðabíla „í snattinu“ og þeir eru báðir rafdrifnir. „Við næstu endurnýjun vinnuvéla verður skoðað hvort rafknúnar vélar geti hentað verkefnunum hér“, bætir Davor við.

Hjá Landfara ehf. ríkir einnig ánægja með afhendinguna.

„Það er ánægjulegt að sjá fyrirtæki eins og Kölku taka afgerandi skref í orkuskiptum með því að velja Mercedes-Benz eActros 400. Bíllinn sameinar öfluga afkastagetu, góða drægni og hagkvæman rekstur og hentar afar vel fyrir íslenskar aðstæður. Við erum stolt af því að fá að vera hluti af þessari vegferð með Kölku,“ segir Ólafur Þór Þórðarson, sölustjóri vörubíla hjá Landfara ehf.

Um bílinn

•   Mercedes-Benz eActros 400 fullrafknúinn vörubíll

•   Allt að 400 km drægni við hagstæð skilyrði

•   17 bretta vörukassi frá Kiesling

•   2,5 tonna vörulyfta

•   Afhentur af Landfara ehf.,

     umboðsaðila Mercedes-Benz Trucks á Ísland

Eignasalan
Eignasalan