Viðskipti

Kaffi Skúrinn á Garðskaga heillar gesti upp úr skónum
Bogi tekur á móti gestum á kaffihúsinu. VF/hilmarbragi
Föstudagur 10. júlí 2026 kl. 09:20

Kaffi Skúrinn á Garðskaga heillar gesti upp úr skónum

Það er eitthvað magnað við Garðskagann. Í stórbrotnu umhverfi þar sem úthafið mætir landi, við hliðina á vitunum tveimur, hefur nýr áfangastaður litið dagsins ljós sem á eftir að ylja mörgum um hjartarætur í sumar. Þetta er Kaffi Skúrinn (eða Coffee Shack) við Hólavelli, lítið og dásamlega vinalegt fjölskyldukaffihús sem fékk starfsleyfi um miðjan júní og hefur fengið draumaviðtökur síðan.

Þegar blaðamann ber að garði tekur sjálfur vertinn, Bogi Jónsson, á móti honum með bros á vör. Bogi er mörgum kunnur, enda enginn nýgræðingur í bransanum. Það eru nefnilega heil 40 ár síðan hann hóf rekstur með hinum landsþekktu „Boga-Rúllum“ úr matarvangi. Síðan þá hefur hann rekið taílenska veitingastaði, vöruhús og heimaveitingahús á Álftanesi.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Eftir fjármálahrunið keyptu Bogi og eiginkona hans, Narumon Sawangjaitham, Hólavelli við Skagabraut 86 í Garðinum og hafa búið þar til margra ára. Bogi lét hendur standa fram úr ermum, reif eldri byggingar á landareigninni og reisti nýtt hús sem nú hýsir þetta líka dásamlega kaffihús ásamt vinnustofu hans.

Minningaveggurinn sem bjargað var úr geymslu

Kaffi Skúrinn er ekki bara staður til að fá sér kaffisopa; hann er lifandi safn og vitnisburður um litríkan starfsferil Boga. Inni á kaffihúsinu má skoða ýmsa muni og á vinnustofunni ber hæst merkilegan minningavegg sem á sérstaka sögu. Veggurinn stóð áður á einum af fyrri veitingastöðum Boga og á hann höfðu þjóðþekktir einstaklingar ritað nöfn sín og kveðjur. Þegar Bogi þurfti að gera breytingar á þeim stað vildi hann ómögulega að mála yfir þessar dýrmætu minningar. Hann tók því vegginn einfaldlega niður í heilu lagi, setti í geymslu, og nú, áratugum síðar, hefur veggurinn fengið nýtt líf og heiðurssess á Garðskaga. Þar hafa ritað nöfn sín Megas, Björk, Jón Páll Sigmarsson og fjölmargir aðrir landsþekktir einstaklingar.

Kaffi og krúttlegur flóamarkaður

Rómantíkin og samvinnan svífur yfir vötnum á Hólavöllum. Á meðan Bogi stendur vaktina og hellir upp á kaffið fyrir gesti og gangandi sér Narumon, eiginkona hans, um flóamarkað sem staðsettur er í nýlega uppgerðu húsi, sem áður var fjós og hlaða, rétt við hliðina á kaffihúsinu.

Þótt þau hjónin séu bæði komin á eftirlaun leyndist greinilega nóg af krafti í þeim og þau viðurkenna að þau hafi hreinlega of gaman af því að standa í svona rekstri til að sitja auðum höndum. Staðurinn er lítill og tekur fáa í sæti, sem er að sögn Boga alveg passleg stærð fyrir þau tvö til að halda utan um. Viðtökurnar hafa samt farið fram úr björtustu vonum og það hefur verið mun meira að gera en þau áttu von á.

Heimamenn eru strax farnir að dásama staðinn. Kristín Júlla Kristjáns, íbúi í Suðurnesjabæ, skrifaði nýverið dásamlega umsögn á Garðmenn og Garðurinn á fésbókinni þar sem hún útnefndi Kaffi Skúrinn sem nýja uppáhalds kaffihúsið sitt:

„Maður finnur svo vel ástina og kærleikann sem er lagt í þetta, andinn þarna er svo góður að þig langar ekki að yfirgefa staðinn og svo spillir ekki fyrir að það er líka lítill krúttlegur flóamarkaður á staðnum. Ég elska þetta!“

Sólmyrkvi í vændum og vetrarplön

Fram undan er spennandi sumar og Bogi segist strax farinn að búa sig undir mikið fjör þann 12. ágúst næstkomandi, en þá mun almyrkvi á sólu sjást einstaklega vel af Garðskaganum og búist er við miklum fjölda ferðamanna á svæðið.

Hvað framtíðina varðar tekur Bogi lífinu með ró. Þegar hausta tekur og veturinn gengur í garð gerir hann ráð fyrir að það verði jafnvel bara opið um helgar, en það eigi allt eftir að koma betur í ljós á næstu vikum.

Fyrir þá sem vilja upplifa einstaka alúð, sögu, góðan kaffisopa og skemmtilegan flóamarkað í einu fegursta umhverfi Suðurnesja þá er Kaffi Skúrinn opinn alla daga á milli klukkan 12:00 og 20:00. Það er óhætt að mæla með bíltúr á Garðskaga.

Á vinnustofu Boga má sjá ýmsa muni og skilti sem tengjast starfsferlinum.

Eignasalan
Eignasalan