K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Viðskipti

Guðrún og Inga Lára í hópi 40 efnilegustu stjórnenda
Guðrún Ólöf (t.v.) og Inga Lára.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 30. júní 2026 kl. 15:50

Guðrún og Inga Lára í hópi 40 efnilegustu stjórnenda

Tvær ungar konur úr Keflavík, þær Guðrún Ólöf Olsen og Inga Lára Jónsdóttir eru í hópi fjörutíu efnilegra stjórnenda og er spáð frekari frama í íslensku viðskiptalífi. Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti hefur sett saman listann sem er gefinn út annað hvert ár og kemur nú út í fimmta sinn.

Guðrún Olsen (33 ára) er forstöðumaður stefnu og umbreytinga hjá Icelandair.

Inga Lára Jónsdóttir er framkvæmdastjóri þjónustu og snjallra lausna HS Veitna. Hún hóf störf hjá HS Veitum á síðasta ári eftir að hafa verið framkvæmdastjóri Securitas á Suðurnesjum í nokkur ár.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti, sem er í eigu almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hefur birt lista yfir 40 efnilega stjórnendur í viðskiptalífinu árið 2026 sem eru 40 ára og yngri.

Þetta er í fimmta sinn sem félagið birtir slíkan lista, en markmið fyrirtækisins er að gefa hann út á tveggja ára fresti.

„Listinn er tekinn saman til að lyfta fólki sem hefur staðið sig vel í því vandasama hlutverki að vera stjórnandi en getur einnig gefið vísbendingu um hverjir gætu átt eftir að taka við æðstu stöðum í íslenskum fyrirtækjum á næstu árum,“ segir í grein Góðra samskipta á Medium.

Andrés fékk fjölda ábendinga og hann segir að reynt hafi verið að velja einstaklinga sem hafa náð langt í kröfuhörðu umhverfi eða sinna stjórnunarstöðum sem fela í sér mikla ábyrgð innan íslenskra fyrirtækja.

Umsögn um Ingu Láru:

Inga Lára Jónsdóttir (40), framkvæmdastjóri þjónustu og snjallra lausna HS Veitna

Inga Lára tók við sem framkvæmdastjóri nýs sviðs, þjónustu og snjallra lausna hjá HS Veitum í júní á síðasta ári, eftir að hafa verið valin úr hópi 110 umsækjenda. Sviðið var stofnað í kjölfar skipulagsbreytinga sem tóku gildi í byrjun árs 2025, með það að markmiði að setja þjónustu við viðskiptavini í enn sterkari forgang. Undir sviðið falla þrjár deildir sem eru í beinni snertingu við viðskiptavini: mæladeild, þjónusta og innheimta.

Inga Lára hefur mannaforráð yfir 15 starfsmönnum af um 90 starfsmönnum fyrirtækisins og ber ábyrgð á rekstri, árangri, starfsþróun, fjárhagsáætlun og samstarfi við önnur svið. Þjónustusvið HS Veitna nær til yfir 80 þúsund íbúa auk fjölda fyrirtækja og stofnana. Áður en Inga Lára kom til HS veitna starfaði hún sem forstöðumaður Securitas á Suðurnesjum og stýrði þar hátt í hundrað manns.

Sem stjórnandi leggur Inga Lára megináherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir öryggi, stuðning og starfsánægju. Hún hvetur til frumkvæðis og ábyrgðar, vill að fólk þori að stíga fram með hugmyndir og lítur á mistök sem eðlilegan hluta af þróun og árangri. Traust, gagnkvæm virðing og hreinskilin samskipti eru hornsteinar í hennar hugmyndafræði, ásamt metnaði fyrir árangri og skýrum markmiðum. Hún leggur áherslu á samvinnu og að virkja styrkleika hvers og eins og vinnur einnig markvisst að eigin þróun sem leiðtogi.

Inga Lára er með Bsc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í stjórnun og forystu frá Háskólanum á Bifröst.

Guðrún Olsen (33), forstöðumaður stefnu og umbreytinga Icelandair

Guðrún er forstöðumaður stefnu og umbreytinga hjá Icelandair og leiðir stefnumótun, umbreytingar og stafræna þróun félagsins. Hún ber ábyrgð á að tengja saman langtímastefnu og framkvæmd í daglegum rekstri og tryggja að umbreytingarverkefni skili raunverulegum og mælanlegum árangri þvert á félagið.

Hún gegnir lykilhlutverki í ONE Transformation breytingaferli Icelandair og vinnur að stefnumótun, forgangsröðun og stærri ákvörðunum sem móta framtíð félagsins. Undir hana fellur einnig vöru- og verkefnastjórnun stafrænna lausna, auk þess að tryggja að ákvarðanir séu gagnadrifnar og að framkvæmd haldi dampi frá hugmynd að innleiðingu.

Guðrún leiðir 11 manna teymi sem vinnur þvert á stefnumótun, umbreytingar, verkefnastjórnun og vöruþróun, og starfar náið með framkvæmdastjórn og stjórn félagsins að lykilverkefnum og stefnumótandi málum. Sem stjórnandi telur Guðrún fólk og þróun þess skipta höfuðmáli. Hún leggur áherslu á að skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær ábyrgð, tækifæri til að takast á við krefjandi verkefni og skýran stuðning til að vaxa í starfi. Traust, skýr endurgjöf og tenging við heildarmynd fyrirtækisins eru grunnstoðir í hennar stjórnunarstíl.

Guðrún er með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og LLM frá Kaupmannahafnarháskóla. Áður starfaði hún m.a. hjá Boston Consulting Group (BCG) í Kaupmannahöfn.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar