Viðskipti

Þegar Davíð hitti Golíat í Grindavík
Helga Árnadóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir frá Bláa lóninu ásamt þeim Ívari Kjartanssyni og Chidaphu Kruasaeng frá Neskju. Með þeim á myndinni er Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur, sem leiddi fyrirtækin saman. VF/hilmarbragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 27. júní 2026 kl. 12:50

Þegar Davíð hitti Golíat í Grindavík

Stjórnendur Bláa lónsins, stærsta fyrirtækis Grindavíkur, heimsóttu minnsta fyrirtæki bæjarins og smökkuðu súkkulaði sem er hreinlega ávanabindandi

Það voru sérstakur og ansi bragðgóður fundur sem fór fram í Grindavík á dögunum. Í kjölfar stórs fundar Samtaka atvinnulífsins á Bryggjunni, ákvað stjórnendateymi Bláa lónsins, stærsta fyrirtækis Grindavíkur, að skella sér í óvænta heimsókn til þess minnsta: Handverkskonfektgerðarinnar Neskju við Hafnargötu. Það var sjálfur bæjarstjórinn, Fannar Jónasson, sem kom heimsókninni á og leiddi hópinn til súkkulaðismökkunar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Neskja er nýtt sælkerafyrirtæki sem stofnað var af hjónunum Ívari Kjartanssyni og Chidaphu Kruasaeng, sem betur er þekkt sem Kung. Kung er enginn nýgræðingur í bransanum en hún er menntuð frá hinum virta French Pastry School í Chicago, starfaði um árabil við hlið Hafliða Ragnarssonar, fremsta súkkulaðimeistara landsins, og á að baki þrjár ferðir með íslenska kokkalandsliðinu – meðal annars þegar liðið nældi í þriðja sætið á Ólympíuleikunum árið 2020.

„Vildum vera hluti af uppbyggingunni í Grindavík“

Þrátt fyrir jarðhræringar og erfiða tíma á svæðinu voru þau Ívar og Kung aldrei í vafa um hvar þau vildu opna draumafyrirtækið sitt.

„Við sáum tækifæri í Grindavík, með alla þessa uppbyggingu að fara af stað, og við vildum vera hluti af henni. Okkur fannst tilvalið að koma hingað,“ sögðu þau skötuhjú þegar þau sýndu stjórnendum Bláa lónsins litlu en tæknilegu aðstöðuna sína.

Opnun nýrra fyrirtækja eins og Neskju gefur samfélaginu mikið móralskt stökk, að sögn Fannars bæjarstjóra, sem mætti galvaskur með í heimsóknina.

Neskja framleiðir hágæða húðað konfekt (dragee) og karamellur úr fyrsta flokks hráefni frá Belgíu, Frakklandi og Ítalíu, blandað íslenskum aðalbláberjum, lakkrís og karamellum ýmis konar. Vegna þess að fyrirtækið er enn að stíga sín fyrstu skref er nánast allt gert í höndunum, en afkastageta þeirra tveggja er um 200 konfettdósir á dag en molarnir kallast Völur.

Súkkulaðikúlur í litum Bláa lónsins?

Í heimsókninni voru stjórnendur lónsins fljótir að gæða sér á handverkinu og fóru Fannar bæjarstjóri og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, á kostum við að smakka hinar ýmsu tegundir, s.s. saltkaramellu-, og lakkríssúkkulaðikúlur.

Fljótlega fór fólk að velta fyrir sér mögulegu samstarfi á milli þessa stærsta og minnsta fyrirtækis í bænum. Neskja framleiðir þegar sérsniðið Benz-konfekt fyrir bílaumboðið Öskju sem fylgir nýjum bílum, og var sú hugmynd reifuð á staðnum hvort Kung gæti hannað sérstakar lúxussúkkulaðikúlur í bláum kísillit lónsins.

Spurð út í það hvort hún sæi tækifæri í samstarfi við Neskju stóð ekki á svörum hjá forstjóra Bláa lónsins:

„Þetta súkkulaði er auðvitað hreinlega ávanabindandi, þannig að ég þarf aðeins að jafna mig! Þetta var svo stórkostleg upplifun,“ sagði Sigríður Margrét sæl í bragði með körfu af konfekti í hönd.

„Við erum að sjálfsögðu í samstarfi við fullt af fyrirtækjum og það er frábært að vera hér og fá tækifæri til að skoða þetta. Fyrsta skrefið er náttúrulega að fara með þessa ótrúlegu gjöf sem ég fékk til fólksins okkar sem velur vörur í búðirnar okkar og leyfa því að smakka. Þetta er alveg einstök gæðavara.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar