Sumarsýning smart hjá Öskju í Reykjanesbæ
Föstudaginn 19. júní verður smart í brennidepli Askja heldur sumarsýningu að Njarðarbraut 11. Gestum gefst þar kostur á að kynna sér alla smart fjölskylduna, fara í reynsluakstur og gæða sér á grilluðum pylsum.
Til sýnis verða smart #1, smart #3 og hinn margverðlaunaði smart #5. Þrír alrafmagnaðir bílar með ólíkan karakter en allir byggðir á sömu hugmyndafræði smart um nútímalega hönnun, snjallar tæknilausnir og rafmagnaða akstursupplifun.
smart #1 markaði upphaf nýrrar kynslóðar smart-bíla og sameinar nettar stærðir, góða drægni og vandaðan búnað. Bíllinn hentar jafnt í borgarakstri sem lengri ferðir og býður upp á allt að 420 kílómetra drægni. Þrátt fyrir fyrirferðarlítið útlit er innanrýmið rúmgott og vel skipulagt. smart #1 hefur meðal annars hlotið Red Dot Design-verðlaunin fyrir hönnun og notendaupplifun.
Sportlegri nálgun má finna í smart #3 sem sker sig úr með straumlínulagaðri hönnun og kraftmiklum aksturseiginleikum. Bíllinn býður upp á allt að 415 kílómetra drægni og kemur með fjórhjóladrifi sem tryggir gott grip og stöðugleika við fjölbreyttar aðstæður. Líkt og #1 hefur #3 einnig hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir hönnun sína.
Einnig verður nýr smart #5, stærsti bíllinn frá smart til þessa á svæðinu. Bíllinn sameinar rúmgott innanrými, mikla drægni og öfluga rafmagnstækni og er hannaður með fjölskyldulífið jafnt sem lengri ferðalög í huga. Drægnin er allt að 540 kílómetrar og hraðhleðslugeta allt að 400 kW.
smart #5 hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga frá því hann kom á markað og hefur hlotið mjög góðar undirtektir hér á landi. Hann var valinn öruggasti stóri SUV-bíll ársins 2025 af Euro NCAP, rafmagnaður fjölskyldubíll ársins 2026 hjá What Car?, hlaut Red Dot Design-verðlaun fyrir hönnun og notendaupplifun og var jafnframt valinn bíll ársins í Noregi árið 2025.
Sumarsýningin fer fram föstudaginn 19. júní frá klukkan 13:00 til 17:00 að Njarðarbraut 11 hjá Öskju í Reykjanesbæ.









