Jóhann Árni nýr yfirþjálfari drengjastarfsins í Njarðvík
Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur hefur gengið frá ráðningu á Jóhanni Árna Ólafssyni sem annars af tveimur yfirþjálfurum yngri flokka félagsins. Jóhann, sem er holdgervingur njarðvísks körfubolta, mun stýra 12. flokki karla á næstu leiktíð ásamt því að halda utan um morgunæfingar félagsins.
Skipulaginu hefur verið deilt upp þannig að Jóhann og Bruno Richotti munu skipta með sér hlutverkum yfirþjálfara; Jóhann mun bera hitann og þungann af drengjamegin á meðan Bruno heldur utan um stúlknastarfið.
Stjórn barna- og unglingaráðs leggur ríka áherslu á að skapa öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir sína iðkendur og er ráðning Jóhanns stórt skref í þeirri vegferð. Hann þekkir vel til starfsins en hann kom m.a. að morgunæfingum í vetur og hljóp inn í þjálfun þegar þess þurfti.
„Nú fáum við Jóhann inn af fullum krafti í starfið en við Njarðvíkingar þekkjum auðvitað vel til leikmannaferils hans og þá hefur Jói einnig getið sér mjög gott orð við þjálfun yngri flokka,“ segir Guðni Sigurbjörn, formaður unglingaráðs Njarðvíkur, spenntur fyrir samstarfinu.
Jóhann á glæsilegan feril að baki en hann lék upp alla yngri flokka Njarðvíkur og átti síðar farsælan feril með meistaraflokki félagsins. Það er því mikill fengur fyrir Græna herinn að fá hann aftur heim í lykilhlutverk á hliðarlínunni.









