Fréttir

Sjónvarpsþættirnir um Grindavík valdir þeir bestu á bandarískri kvikmyndahátíð
Mánudagur 15. júní 2026 kl. 11:00

Sjónvarpsþættirnir um Grindavík valdir þeir bestu á bandarískri kvikmyndahátíð

Heimildaþáttaröðin Grindavík hlaut stóra viðurkenningu um helgina þegar hún vann dómnefndarverðlaunin sem besta sjónvarpsþáttaröðin (Best TV Series) á Lighthouse International Film Festival. Kvikmyndahátíðin var haldin á Long Beach Island í New Jersey í Bandaríkjunum og er þetta mikill heiður fyrir aðstandendur verkefnisins á alþjóðlegum vettvangi. Garðar Örn Arnarson, einn af aðstandendum þáttanna, fagnaði árangrinum á samfélagsmiðlum þar sem hann lýsti yfir gríðarlegu stolti og gleði yfir þessum stóru verðlaunum.

Um er að ræða sex þátta heimildaröð þar sem áhorfendur fylgja íbúum Grindavíkur eftir í heilt ár í kjölfar hinna hörmulegu náttúruhamfara sem neyddu bæjarbúa til að flýja heimili sín. Í þáttunum er sjónum beint að körfuboltaliði Grindavíkur, sem varð að sterku sameiningartákni og dýrmætum samverustað fyrir samfélagið á erfiðum tímum. Þættirnir lýsa því ekki aðeins íþróttalífinu, heldur fyrst og fremst djúpstæðri upplifun fólksins sem þurfti að takast á við þá sárgrætilegu staðreynd að verða flóttamenn í eigin landi.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Að baki þáttunum standa þeir Garðar Örn Arnarson og Sigurður Már Davíðsson, en þeir hafa áður gert Edduverðlaunaþáttaraðirnar um Jón Arnór og Víkingur: Fullkominn endir. Þættirnir voru framleiddir í samstarfi við Stöð 2 Sport og naut verkefnið aðstoðar Egils Birgissonar við framleiðslu. Þá sá fyrirtækið Obbosí um alla eftirvinnslu undir yfirumsjón Freys Árnasonar, Halldór Gunnar Pálsson samdi tónlistina og þeir Kári Jóhannsson og Sigurður Kr. Ómarsson sáu um klippingu. Sigurður Már Davíðsson sá um kvikmyndatökuna en leikstjórn var í höndum Garðars Arnar.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar