Gangbraut fjölbreytileikans fær nýtt líf við ráðhús bæjarins
Gangbraut fjölbreytileikans við Tjarnargötu var endurmáluð í blíðskaparveðri á dögunum, en hún prýðir svæðið beint fyrir framan ráðhúsbyggingu Reykjanesbæjar. Þessi litríka gangbraut á sér nokkra sögu, en hún var fyrst máluð á þessum stað árið 2021 til að fagna fjölbreytileikanum í samfélaginu.
Það voru vaskir krakkar úr Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem sáu um málningarvinnuna af sinni kunnu snilld.







