Viðskipti

Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom
Sigurjón Rúnar Vikarsson og Þórmundur Bergsson. Mynd: BIG (Birgir Ísleifur Gunnarsson)
Þriðjudagur 16. júní 2026 kl. 10:49

Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom

Keflvíkingurinn knái, Sigurjón Rúnar Vikarsson, sem er m.a. í útkallshóp Brunavarna Suðurnesja hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Mediacom á Íslandi. 

Mediacom er eitt elsta birtingahús landsins. Fyrirtækið hefur um árabil verið í samstarfi við stærsta birtingafyrirtæki heims, EssenceMediacom, sem nú er hluti af WPP Media og starfar í yfir 80 löndum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Sigurjón tekur við starfinu af Þórmundi Bergssyni, sem verið framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun. Þórmundur, sem er í dag 67 ára, hefur starfað lengur en flestir aðrir á sviði auglýsingabirtinga á Íslandi eða í tæp 40 ár. Hann og Mediacom hafa getið sér gott orð en fyrirtækið þjónar fjölda innlendra og erlendra viðskiptavina. Þórmundur færist nú í starf ráðgjafa hjá fyrirtækinu.

Þórmundur Bergsson: Það er ánægjuefni að geta afhent ævistarfið í hendur yngra fólks sem hefur sömu ástríðu og maður sjálfur. Sigurjón hefur nú þegar komið inn með fjölda nýrra hugmynda um hvernig við getum þjónað viðskiptavinum Mediacom enn betur en áður og ég hlakka til að vinna með honum áfram.

Sigurjón Rúnar Vikarsson, nýr framkvæmdastjóri Mediacom á Íslandi, er 34 ára og starfaði áður sem rekstrarstjóri Hopp. Þar áður starfaði hann m.a. við viðskiptaþróun, hugbúnaðarþróun og markaðsmál hjá Nova. Sigurjón er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Þá hefur hann sótt stjórnendanámskeið hjá IESE. 

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar