Aðsent

Heilbrigðislaus fiskvinnsla - framhald
Þriðjudagur 30. júní 2026 kl. 09:29

Heilbrigðislaus fiskvinnsla - framhald

Í lok apríl skrifaði undirritaður grein þar sem fjallað var um fiskvinnslu fyrirtækisins Premium of Iceland að Brekkustíg 22 í Reykjanesbæ. Þar var vakin athygli á þeirri óviðunandi umgengni sem þar hefur ríkt um árabil. Rusl og umbúðir hafa ítrekað fokið um nágrennið og fiskúrgangur og óhreinindi flætt um götur okkur nágrönnunum til ama. Slík umgengni á ekki að eiga sér stað í matvælavinnslu án þess að gripið sé til viðeigandi úrræða.

Í kjölfar kvartana okkar til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja fengust loks svör og gögn um málið. Af þeim verður ráðið að starfsemin hefur verið rekin árum saman án þess að hafa starfsleyfi eða skráningu. Jafnframt kemur fram að reksturinn hefur verið færður á milli kennitalna en ávallt starfað undir sama nafni á þessum stað. Engin þessara kennitalna hefur haft gilt starfsleyfi á Brekkustíg 22.

Á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja kemur fram að þar starfi fimm starfsmenn. Því hlýtur sú spurning að vakna hvernig matvælavinnsla af þessari stærðargráðu, staðsett í miðju íbúðarhverfi, geti starfað árum saman með slíkri umgengni án þess að eftirlitið grípi fyrr inn í. Eftirlitið getur vart borið því við að hafa ekki vitað af starfseminni enda hafa ítrekaðar kvartanir borist frá nágrönnum og gögn embættisins sýna einnig að málið hefur verið til umfjöllunar um nokkurt skeið.

Nýverið samþykkti Alþingi breytingar sem fela í sér að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verða lagðar niður og verkefni þeirra færð í nýtt fyrirkomulag. Um það má hafa skiptar skoðanir en það sem almenningur hlýtur þó að gera kröfu um er að sú stofnun sem tekur við sinni eftirlitshlutverki sínu af festu, bregðist hraðar við kvörtunum og tryggi að lög og reglur gildi jafnt um alla.

Eftirlit á að vera virkt en ekki aðeins til staðar á pappírum. Íbúar eiga rétt á að geta búið við hreint og heilnæmt umhverfi. Þurfi ekki að eyða mánuðum og árum í að berjast við að brugðist sé við af staðfestu. Það er lágmarkskrafa um vandaða stjórnsýslu.

Ólafur Gunnarsson
Höfundur er íbúi við Brekkustíg í Njarðvík

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar