Íþróttir

Mikil uppbygging og blómlegt barnastarf hjá Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness
Mánudagur 29. júní 2026 kl. 12:30

Mikil uppbygging og blómlegt barnastarf hjá Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness

Það er mikið um að vera á svæðinu upp af Sólbrekkuskógi þessa dagana. Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness hefur lagt í gríðarlega vinnu við að endurbæta motocrossbraut félagsins, sem og að stórefla allt klúbbstarfið. Við fengum Sigurð Stefánsson, einn af forsvarsmönnum félagsins, í spjall um þá miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað, blómlegt barnastarf og framtíðarsýn klúbbsins.

Ein lengsta og hraðasta braut landsins gerð örugg á ný

Það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu hjá ykkur undanfarið. Geturðu lýst því sem átt hefur sér stað?

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Já, það er búið að vera gríðarlega mikil uppbygging núna. Tvær jarðýtur voru á fullu í samtals um fimm daga við að laga til brautina. Í grunninn er þetta sama gamla brautin en við höfum gert miklar lagfæringar á beygjum og stökkpöllum. Stærsta breytingin er samt sú að við höfum gert svæðið öruggt á ný með því að hreinsa allt grjót í kringum brautina, og það á við um barnabrautina líka. Þetta var orðið ansi hættulegt en er nú komið í lag.“

Hvað er þessi braut eiginlega löng og hvað teygir saga hennar sig langt aftur?

„Hún er 1,6 kílómetrar, þannig að þetta er með lengstu brautum á landinu og jafnframt ein sú hraðasta. Sagan á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1980. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá eldri mönnum í sportinu var byrjað að forma brautina þá og fyrstu keppnirnar voru haldnar í kringum 1981.“

Barnastarfið í algjörum blóma

Klúbburinn var í svolitlum dvala fyrir nokkrum árum. Hvernig lítur félagsskapurinn út í dag?

„Við byggjum þetta rosalega mikið á barnastarfinu. Fyrir þremur árum var klúbburinn nánast óvirkur en við ákváðum að rífa þetta upp. Fyrsta árið mættu kannski þrír til fimm krakkar á æfingar, en í dag erum við með 25 til 30 krakka á hverri einustu æfingu og samtals í kringum 50 til 55 börn sem æfa hjá okkur. Þetta byggist mikið á ötulum foreldrum sem hafa sjálfir hjólað og eru með börnin sín í þessu.“

Þið fenguð líka nýja klúbbaaðstöðu nýlega, er það ekki?

„Jú, við fengum sex gámahús í gegnum ÍRB og Reykjanesbæ sem stóðu áður við malarvöllinn í Keflavík. Þar er komin eldhúsaðstaða, salerni og rotþró. Eins og er keyrum við allt á rafstöðvum þegar við erum á svæðinu, en næstu stóru baráttumálin okkar eru að fá rafmagn og vatn á svæðið. Það er um 1,5 kílómetri í næstu spennistöð en það á að vera hægt að bora eftir vatni hjá okkur. Þetta er unnið í góðu samráði við aðra á svæðinu, eins og skógræktina í Sólbrekkuskóli og flugklúbbinn.“

Frábær árangur á Íslandsmótinu

Þið hélduð fyrstu keppnina í Íslandsmótaröðinni á dögunum. Hvernig gekk það?

„Það gekk hreinlega vonum framar. Við erum búin að sækja um það í tvö ár að fá að halda Íslandsmót og fengum það loksins í vetur. Keppendur voru gríðarlega ánægðir. Við vorum heppnir með veður en það var dálítið þurrt, þannig að við þurftum að vökva brautina jafnóðum á meðan keppni stóð. Við fengum lánaðan traktor og haugsugur frá góðum mönnum og sóttum vatn í Seltjörnina. Þetta var hálfgert neyðarúrræði en gekk frábærlega þökk sé öflugum félagsmönnum.“

Sástu til þess að bæjarstjórinn mætti á svæðið?

„Jú, það er mikill áhugi hjá bæjaryfirvöldum á þessari uppbyggingu. Bæjarstjórinn mætti og mundaði startflaggið, sem var virkilega gaman. Það gaf okkur gott tækifæri til að kynna fyrir honum þetta mikla starf sem hér er í gangi.

Við eigum marga virkilega öfluga hjólamenn og það er ánægjulegt að sjá að fólk er farið að sækja sérstaklega í klúbbinn til okkar af því að það spyrst út hversu öflugt starfið er,“ bætir Sigurður við stoltur.

Sólbrekkur að breytast í öflugt útivistarsvæði

Þetta svæði í Sólbrekkunum virðist vera að breytast í heilmikið útivistarsvæði fyrir fjölskyldur?

„Já, þetta er orðið stórkostlegt svæði. Hér eru gönguleiðir, braut fyrir fjarstýrða bíla, flugklúbburinn og ný aðstaða í skóginum. Hjá okkur erum við með mótorkrossbrautina, tvær barnabrautir og enduróhringi (enduro). Það er mikið af fjölskyldufólki sem sækir hingað og það er dásamlegt að fylgjast með lífinu hérna, til dæmis að horfa á flugvélarnar taka á loft á meðan við erum að hjóla.“

En hvernig er með aðgang? Það er gjaldskylda í brautina en svæðið er opið allan sólarhringinn. Gengur það upp?

„Því miður hefur borið svolítið á því að fólk mæti og hjóli án þess að borga. Það er mjög kostnaðarsamt að reka svona svæði þar sem allar lagfæringar krefjast vinnuvéla. Við erum með myndavéla- og eftirlitskerfi og höfum rætt við fólk í gegnum það. Við treystum samt enn þá á gamla skólann – að fólk gangi vel um og sýni þessu virðingu. Við erum með salernisaðstöðu (kamar) á svæðinu svo fólk þurfi ekki að gera þarfir sínar úti á víðavangi eða í næstu beygju.“

Þannig að þú ert brattur fyrir framtíðina?

„Mjög brattur og framtíðin er björt. Við erum með gríðarlega flotta og öfluga þjálfara og það eru tveir til þrír þjálfarar á hverri einustu barnaæfingu. Ég hvet fólk eindregið til að koma og kynna sér starfið hjá okkur á þriðjudögum milli kl. 18-20, mæta með krökkunum og sjá hvað er um að vera.“

Aðgengi að brautinni er í gegnum Seltjörn og Sólbrekkuskóg en vegurinn á svæðið er greiðfær fyrir fólksbíla.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar