Milljarða fjárfestingar fram undan á Keflavíkurflugvelli
„Við tengjum heiminn í gegnum Ísland,“ sagði Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia, á fundi hjá KADECO á dögunum. Hún kynnti þar viðamikil áform um áframhaldandi uppbyggingu flugvallarins undir merkjum KEF+, en fram undan eru risavaxnar framkvæmdir sem munu breyta upplifun farþega og stórbæta afkastagetu og rekstraröryggi.
Maren fór yfir farþegaþróunina síðustu ár og benti á að flugið leiti alltaf jafnvægis. Reynslan sýni hins vegar að á fimm til sex ára fresti komi dýfur í bransanum sem þurfi að vera tilbúin að takast á við. Í farþegaspánni hefur það áhrif að gert er ráð fyrir minni flugumferð vegna falls flugfélagsins Play.
Þessar breyttu forsendur hafa áhrif á fjármögnun og uppbyggingaráætlunina og svaraði Maren því til að Isavia hefði hliðrað til og breytt röð verkefna vegna þessa. Í stað þess að þurfa að byggja fjarstæði í miklum flýti og treysta á rútustarfsemi á flughlöðum líkt og gert var í harðri samkeppni Icelandair og WOW air hér áður fyrr er núna hægt að setja fullan fókus á tengibygginguna á miðju hlaðinu milli norður- og suðurbyggingar flugstöðvarinnar, sem mun vaxa jafnt og þétt.
Þá fagnaði hún því sérstaklega að áherslubreytingar hjá Icelandair séu að skila sér í betri nýtingu innviða. Í stað þess að keyra starfsemina upp í tveimur risastórum „flugbönkum“ (snemma morguns og síðdegis) stefnir flugfélagið á að byggja upp fjóra til fimm banka innan dagsins. Það þýðir að Isavia þarf síður að hanna innviði og auka afkastagetu út frá stærsta og erfiðasta álagstímanum, heldur nýtist núverandi aðstaða jafnar og þéttar yfir allan daginn. Markviss markaðssetning hefur sömuleiðis skilað því að umferðin dreifist nú mun betur yfir vetrarmánuðina en áður. Í dag eru 27 flugfélög að nýta sér Keflavíkurflugvöll í áætlanakerfum sínum.

Risafjárfesting á miðju hlaðinu
Næsta stóra verkefnið á uppbyggingaráætlun Isavia er svokölluð tengibygging sem tengir saman ólíka hluta flugstöðvarinnar. Um er að ræða 10.000 fermetra byggingu og nemur áætluð fjárfesting um 22 milljörðum króna. Verkefnið er komið á hönnunarstig fjögur og útboð fyrir undirbúningsverkefni hafa verið opnuð.
Maren segir mikilvægt að hafa í huga að þarna er um flókið framkvæmdaverkefni að ræða sem skýri hluta verðmiðans. Það sé flókið að ráðast í stór framkvæmdaverkefni á flugvelli í fullum rekstri. Breyta þarf m.a. flugvélastæðum í kringum bygginguna og uppfæra eldsneytiskerfi á stæðunum sem gerir framkvæmdina dýrari en ef einungis væri verið að reisa hús. Ólíkt víða annars staðar sé ekki hægt að loka flugvellinum til að framkvæma heldur þurfi að byggja samhliða daglegum rekstri. Það sé flækjustig sem flugvallarrekendur um allan heim þekki.
„Þetta er á miðjum flugvellinum, þannig að það verður smá bras að koma farþegum á milli á meðan á framkvæmdum stendur,“ sagði Maren. Gerður verður tímabundinn, lokaður göngugangur á hlaðinu til að tryggja að starfsemi flugvallarins verði órofin á byggingartímanum. Nýja byggingin verður frábrugðin þeim eldri, mun hærra til lofts, og mun hún endurspegla hönnun, gæði upplifunar og þjónustu líkt og í austurvæng og nýrri bygginarhlutum.
Nýtt 12 milljarða afísingarsvæði
og stærra farangurskerfi
Isavia áformar einnig stórfelldar breytingar á útisvæðum vallarins. Í hönnun er nýtt afísingarsvæði og akbraut sem mun telja um 185.000 fermetra og kosta um 12 milljarða króna.
Í dag eru flugvélar afísaðar uppi við flugstöðina sjálfa, sem tefur fyrir á stæðunum. Með nýja svæðinu verður afísingin færð fjarri flugstöðinni, sem einfaldar alla þjónustu og flýtir fyrir. Maren benti á að þarna gætu skapast tækifæri fyrir samfélagið og einkaaðila til að taka að sér þessa sérhæfðu þjónustu í framtíðinni.
Þá stendur til að stækka farangursflokkunarkerfið til að tryggja rekstraröryggi og mæta framtíðarvexti, en helsti flöskuhálsinn í dag er að kerfið þykir viðkvæmt ef upp koma bilanir. Framtíðarplön Isavia gera ráð fyrir að farangurskerfi vallarins verði staðsett í risastórum kjallara undir nýrri byggingu á austurvæng flugstöðvarinnar, en sú stækkun er áætluð í kringum árið 2031.
„Nýja byggingin verður frábrugðin þeim eldri, mun hærra til lofts, og mun hún endurspegla hönnun, gæði upplifunar og þjónustu líkt og í austurvæng og nýrri bygginarhlutum“
Ný tækni í handfarangursleit
Maren ræddi einnig nýlega gagnrýni á að vopnaleit á Keflavíkurflugvelli nýtti ekki nýjustu tækni (þar sem farþegar þurfa ekki að taka tölvur og vökva úr töskum). Hún útskýrði að Isavia hefði forgangsraðað fjármagni í að uppfylla strangar og bindandi Evrópureglugerðir varðandi gegnumlýsingarvélar fyrir innritaðan farangur.
Hvað handfarangurinn varðar hefur slíkt bindandi tímatakmark ekki verið sett og því hafi Isavia getað beðið átekta. Nú sé hins vegar rétti tímapunkturinn að skipta búnaðinum út. Útboðsgögn fara út í næsta mánuði og er stefnt að því að ný og mun þægilegri skimunartækni fyrir handfarangur verði tekin í gagnið í lok árs 2027.
Demantssvæðið og hóteluppbygging
Að lokum nefndi Maren að áherslur Isavia varðandi hið svokallaða „Demantssvæði“ og uppbyggingu á Ásbrú hefðu ekki breyst, þótt hlutirnir tækju aðeins lengri tíma en áætlað var fyrir nokkrum árum. Unnið er að því að skoða hvort hægt sé að minnka ýtrasta haftasvæði flugvallarins til að rýma fyrir fjölbreyttari starfsemi. Eins þurfi að færa eldsneytislögn í jörðu áður en stórframkvæmdir hefjast þar.
Isavia leitar nú þegar að samstarfsaðilum til að reisa nýtt 200-400 herbergja flugvallarhótel á svæðinu og hvetur Maren áhugasama til að kynna sér málið á vefnum kefplus.is, þar sem hægt er að fylgjast náið með öllum teikningum og framtíðaráformum flugvallarins.











