Íþróttir

Sigurmark Keflavíkur úr efstu hillu
Alpha Conteh reyndist hetja Keflvíkinga í dag þegar hann skoraði stórglæsilegt sigurmark á lokasekúndunum í framlengingu. Hér má sjá augnablikið áður en boltinn hafnaði í markinu. VF/hilmarbragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 28. júní 2026 kl. 19:30

Sigurmark Keflavíkur úr efstu hillu

Keflavík nældi í dýrmæt þrjú stig í dag eftir gríðarlega spennandi 3–2 sigur gegn KR á heimavelli í Bestu deild karla í knattspyrnu. Leikurinn bauð upp á miklar sveiflur og dramatík, en Alpha Conteh tryggði heimamönnum sigurinn með stórglæsilegu marki undir lokin.

Haraldur Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum í skýjunum með karakterinn í sínum mönnum að leik loknum.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
„Frábær skemmtun“

„Þetta var bara frábær skemmtun og alvöru fótboltaleiur,“ sagði Haraldur, sýnilega sáttur með sitt lið. „Leikurinn var svolítið fram og til baka á endanum en mér finnst fyllilega sanngjarnt að við höfum klárað þetta 3–2.“

Keflvíkingar lentu snemma undir í leiknum eftir smá einbeitingarleysi í vörninni, en þeir voru fljótir að bíta til baka og jöfnuðu metin fyrir hlé.

„Við vorum kannski svolítið svona sofandi í byrjun, fengum á okkur mark. En strákarnir svöruðu því mjög vel. Staðan var 1–1 í hálfleik sem var bara fín staða fyrir okkur,“ sagði Haraldur um fyrri hálfleikinn.

Mark úr efstu hillu tryggði sigurinn

Heimamenn mættu af krafti inn í síðari hálfleikinn og komust yfir með marki frá Marin Mudrazija, en KR-ingar neituðu að gefast upp og jöfnuðu metin. Það var svo Alpha Conteh sem reyndist hetja Keflvíkinga þegar hann skoraði stórglæsilegt sigurmark á lokasekúndunum í framlengingu.

„Þetta var stórglæsilegt skot hjá honum, bara úr efstu hillu. Það er bara þannig,“ sagði Haraldur um sigurmarkið.

Full trú á heimavellinum

Haraldur sparaði ekki hrósið þegar hann var spurður út í vinnuframlag leikmanna sinna, en baráttan og viljinn skein út úr hverri hreyfingu liðsins í dag.

„Við höfum að sjálfsögðu trú á því að við getum unnið alla leiki, og þá sérstaklega hérna á heimavelli. Ég er ótrúlega ánægður með strákana. Vinnuframlagið og bardaginn var til fyrirmyndar og menn voru að kasta sér fyrir alla bolta hérna í lokin. Ég er mjög ánægður með þessa þrjá punkta,“ sagði Haraldur að lokum áður en hann rauk inn í klefa að fagna með lærisveinum sínum.

Keflavík - KR 3:2 // Besta deild karla 2026

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar