Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hún tekur við embættinu á miðvikudag.
Margrét Kristín er lögfræðingur að mennt. Frá árinu 2020 hefur hún gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum innan lögreglunnar, meðal annars sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, settur aðstoðarlögreglustjóri við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, yfirlögfræðingur og sviðsstjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Hún var sett og síðar skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2023 og var jafnframt staðgengill lögreglustjóra. Frá maí 2025 hefur hún verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Margrét Kristín hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnsýslu og þróun löggæslumála. Hún hefur setið í fjölmörgum starfs- og stýrihópum, tekið þátt í lagasetningarvinnu, meðal annars við endurskoðun lögreglunáms, og komið að mótun laga um menntun lögreglu. Þá hefur hún gegnt lykilhlutverki í Schengen-samstarfi Íslands, framkvæmd Schengen-úttekta og alþjóðlegu samstarfi á sviði landamæra-, lögreglu- og öryggismála.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum var auglýst laust til umsóknar 23. september 2025 og sóttu sex um. Einn dró umsókn sína til baka.







