Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Skólamatur stækkar enn á Iðavöllum
Fimmtudagur 9. júlí 2026 kl. 13:33

Skólamatur stækkar enn á Iðavöllum

Fyrsta skóflustunga að nýrri viðbyggingu. Framleiðslugeta eykst um allt að 50%.

Fyrsta skóflustunga að nýrri viðbyggingu við húsnæði Skólamatar á Iðavöllum í Reykjanesbæ var tekin 7. júlí. Þar með hófust formlega framkvæmdir við næsta stækkunarskref fyrirtækisins, sem þjónustar nú um 125 leik- og grunnskóla á suðvesturhorni landsins.

Axel Jónsson, eigandi Skólamatar, tók fyrstu skóflustunguna við athöfn á framkvæmdasvæðinu. Viðstaddir voru meðal annars Viðar Ellertsson frá Ellert Skúlasyni ehf. og Unnar Ragnarsson frá HUG-Verktökum, sem koma að framkvæmd verkefnisins.

Stærri og betri aðstaða

Nýja viðbyggingin verður 126,4 fermetrar að stærð og mun hýsa ný kælisvæði, móttöku fyrir hráefni og vörur, afhendingarsvæði og geymsluaðstöðu. Samhliða verður núverandi húsnæði endurnýjað að utan og fært í samræmt útlit við aðrar byggingar fyrirtækisins á svæðinu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Frá því að nýtt miðlægt framleiðslueldhús var tekið í notkun árið 2023 hefur Skólamatur unnið markvisst að því að nýta aðstöðuna til að styrkja framleiðsluaðferðir og vöruþróun. Nýja viðbyggingin tengist núverandi framleiðslueldhúsi og er henni ætlað að auka afkastagetu og bæta framleiðsluaðferðir til að styðja við áframhaldandi vöxt.

- En af hverju er fyrirtækið að ráðast í frekari stækkun?

„Þessi framkvæmd er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Skólamatar. Með henni styrkjum við getu fyrirtækisins til að mæta vexti, auknum gæðakröfum og þörfum skólasamfélagsins á komandi árum,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki síðar á þessu ári.

Nýr búnaður og aukin framleiðslugeta

Samhliða byggingarframkvæmdum stendur yfir endurnýjun og stækkun á framleiðslubúnaði Skólamatar. Fyrirtækið hefur fjárfest í nýjum 400 lítra suðupottum og verða þá alls ellefu suðupottar af þeirri gerð í framleiðslueldhúsinu. Samanlögð framleiðslugeta pottanna verður um 4.500 lítrar í hverri framleiðslulotu.

Pottarnir eru hannaðir fyrir framleiðslu í stórum stíl og bjóða upp á sjálfvirka hitastýringu, blöndunarkerfi og kælimöguleika. Slíkur búnaður gerir fyrirtækinu kleift að framleiða stærri lotur með meiri stöðugleika og betri nýtingu hráefna.

Matvælaöryggi og umhverfismál

Hluti af þessari framkvæmd er gangsetning á tveimur nýjum hraðkælum. Þeir gera mögulegt að kæla stórar framleiðslulotur hratt og örugglega, þannig að matvæli fari á skömmum tíma úr eldunarhita niður í öruggt geymsluhitastig.

„Hraðkæling skiptir miklu máli í starfsemi sem þessari. Hún styrkir matvælaöryggi, hjálpar til við að varðveita bragð, áferð og næringargildi matvæla og getur jafnframt dregið úr matarsóun,“ segir Jón.

Við val á nýju kælikerfunum var einnig horft til umhverfisþátta. Hraðkælarnir nota CO₂ sem kælimiðil í stað hefðbundinna kæligasa. CO₂ er náttúrulegt kælimiðilsefni sem hefur mun minni loftslagsáhrif en mörg eldri kælimiðilsefni. Með þessari fjárfestingu tekur Skólamatur skref í átt að umhverfisvænni lausnum samhliða aukinni framleiðslugetu.

Bjartir tímar framundan

Ný viðbygging, aukin framleiðslugeta og endurbætt vinnuaðstaða eru hluti af þeirri þróun sem átt hefur sér stað hjá Skólamat undanfarin ár.

Þegar framkvæmdunum lýkur síðar á árinu er áætlað að framleiðslugeta fyrirtækisins hafi aukist um allt að 50%. „Við sjáum áframhaldandi eftirspurn eftir þjónustu okkar og erum spennt fyrir komandi tímum. Ný aðstaða og betri búnaður munu hjálpa okkur að halda áfram að bæta þjónustuna og sinna því mikilvæga hlutverki að útvega nemendum í leik- og grunnskólum heilsusamlegar og vandaðar skólamáltíðir á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson.

Eignasalan
Eignasalan