Fréttir

WestJet flýgur frá KEF til tveggja borga í Kanada
Miðvikudagur 8. júlí 2026 kl. 11:04

WestJet flýgur frá KEF til tveggja borga í Kanada

Fyrstu flug WestJet frá Keflavíkurflugvelli til Edmonton og Winnipeg fóru í loftið þann 27. og 28. júní. Edmonton er ein af stærri borgum Kanada og þekkt fyrir öflugt borgarlíf, fjölbreytta menningu og nálægð við náttúru.

Winnipeg er borg í miðhluta Kanada sem er einnig þekkt fyrir sterk tengsl við Ísland, þar sem stór hluti íslensks vesturflutnings byggðist upp í Manitoba og svæðið varð þekkt sem „Nýja Ísland“. Þar lifir íslensk menningararfleifð enn í dag í gegnum samfélög, viðburði og félög.

„Við fögnuðum þessum nýju tengingum með farþegum á Keflavíkurflugvelli, þar sem gestir fengu hlýjar móttökur, boðið var upp á veitingar og drykki og íslenski þjóðbúningurinn setti hátíðlegan svip á tilefnið,“ segir í tilkynningu Isavia.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Eignasalan
Eignasalan