Elvar Már og Jón Axel í Litháen og Spáni
Landsliðsmennirnir í körfubolta þeir Elvar Már Friðriksson og Jón Axel Guðmundsson eru komnir til nýrra liða en þeir voru báðir í eldlínunni með landsliðinu nýlega.
Jón Axel sem var besti maður Íslands gegn Bretum á útivelli í vikunni hefur samið við Gran Canaria í næstefstu deild spænska körfuboltans. Hann lék síðustu tvö keppnistímabil með San Pablo Burgos.
Elvar Már gekk nýlega til liðs við litháíska liðsins Neptunas. Elvar lék með Anwil Sloclawek megnið af síðasta tímabili en gekk til liðs við Tenerifi í blálok tímabilsins í spænsku deildinni nú snemma sumars. Njarðvíkingurinn er ekki ókunnur litháískum körfubolta en hann lék með Rytas vilnius 2022-2023 og Siauliai 2020-2021.
Elvar sagði aðspurður í viðtölum fyrir landsleikina þegar hann var spurður út í framtíð sína og hvort hann væri á leið heim, að hann ætlaði að leika erlendis áfram. Vitað er að Njarðvíkingar voru margir að dreyma um að hann kæmi heim og myndi styrkja lið UMFN á næsta keppnistímabili.






