Fréttir

Ljósanótt í sjónmáli og nýr meirihluti kynnir 100 daga plan í umhverfismálum
Þriðjudagur 7. júlí 2026 kl. 10:11

Ljósanótt í sjónmáli og nýr meirihluti kynnir 100 daga plan í umhverfismálum

Nýr meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs Reykjanesbæjar hefur lagt línurnar fyrir fyrstu 100 dagana í embætti. Á fyrsta fundi ráðsins, sem haldinn var föstudaginn 26. júní síðastliðinn, kynnti Guðbergur Reynisson, formaður ráðsins, stefnu meirihlutans þar sem rík áhersla er lögð á fegrun bæjarins, úrbætur á stígakerfum og lagfæringar á niðurníddum lóðum fyrir Ljósanótt.

Meirihluti ráðsins, sem skipaður er fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, lagði fram ítarlega bókun þar sem sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs eru falin mörg stór verkefni sem eiga að fara í framkvæmd hið fyrsta.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Fleiri bekkir og snyrtilegri opin svæði

Í fyrsta lagi er lögð áhersla á að bæta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur í bænum. Sviðsstjóra hefur verið falið að kortleggja hvar þörf sé á að fjölga bekkjum við göngu- og hjólastíga sveitarfélagsins og koma þeim fyrir sem fyrst. Samhliða á að skoða hvaða svigrúm er til aukinnar gróðursetningar og snyrtingar á trjábeðum og opnum svæðum í Reykjanesbæ.

Stígakerfið lagfært fyrir Ljósanótt

Meirihlutinn vill jafnframt láta hendur standa fram úr ermum þegar kemur að stígakerfi bæjarins, bæði innan bæjarfélagsins og utan þess. Í bókuninni kemur fram að ráðinu þyki mikilvægt að hefjast handa strax við að kortleggja hvar hægt sé að lagfæra og fjölga göngu- og hjólastígum.

Ráðsmenn benda á að flýta þurfi þessari vinnu þar sem styttist í stærstu hátíð ársins á Suðurnesjum, Ljósanótt, sem haldin verður í 26. sinn í haust og draga mun að sér mikinn fjölda gesta.

Tekið á niðurníddum fasteignum og lóðum

Að endingu tekur nýi meirihlutinn á málum sem lengi hafa brunnið á bæjarbúum, en það eru fasteignir og lóðir sem hafa verið árum saman í framkvæmdum eða eru komnar í hirðuleysi.

Sviðsstjóra og formanni ráðsins hefur verið falið að hafa samband við eigendur þessara eigna til að fara yfir næstu skref. Markmiðið er að þrýsta á um að framkvæmdum eða lagfæringum verði flýtt og á minnisblað um þær viðræður að vera tilbúið til umræðu strax á næsta fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Að bókuninni standa bæjarfulltrúarnir Guðbergur Reynisson (D), Brynjólfur Sveinn Ívarsson (M) og Helga Guðrún Sigurðardóttir (D).