Fjölnir með yfir 200 tonn af fiski í júní
Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK, sem er í eigu Vísis í Grindavík, hefur gert það gott á miðunum að undanförnu. Báturinn hefur að mestu róið frá Neskaupstað síðustu tvo mánuðina.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Kristinn Arnberg Kristinsson, annan skipstjóranna á Fjölni, sem segir veiðarnar fyrir austan almennt hafa gengið býsna vel þótt aflinn hafi verið misjafn og brælur hafi stundum truflað. Sækja þurfti 30 til 40 mílur út frá Neskaupstað til að ná árangri.
Samtals fékkst um 480 tonna afli í maí og júní. Þar af veiddust um 380 tonn fyrir austan og rúmlega 200 tonn af þeim í júnímánuði einum. Kristinn segir fiskinn hafa verið gullfallegan og að ekki sé hægt að kvarta yfir svona veiði.
Nú er komið að sumarstoppi hjá áhöfninni og fer Fjölnir í slipp í Njarðvík í dag.





