Tímabundnar breytingar á umferð við Grænásveg
Á næstunni verður ráðist í tímabundnar breytingar á gatnakerfi við Grænásveg í Reykjanesbæ með það að markmiði að bæta umferðaröryggi og draga úr gegnumakstri um íbúðargötur. Breytingarnar voru samþykktar á fundi bæjarráðs í síðustu viku og verða framkvæmdar þegar undirbúningi þeirra er lokið.
Helstu breytingar eru:
- Þrengt verður að hægri beygju af Njarðarbraut upp Grænásveg.
- Vinstri beygja af Grænásvegi inn á Njarðarbraut verður bönnuð.
- Gatnamót Bergáss og Grænásvegar verða lokuð fyrir akandi umferð.
Markmið breytinganna er að auka öryggi í hverfinu og draga úr umferð sem nýtir íbúðargötur sem hjáleið.
Breytingarnar eru tímabundnar og verða áhrif þeirra á umferðarflæði og umferðaröryggi metin áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.





