Greifarnir færa ballið í Stapa vegna stórleiksins
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að færa ballið með Greifunum í Stapa / Hljómahöll laugardaginn 11. júlí um eina klukkustund. Ballið hefst því kl. 23:00 og stendur til kl. 02:00.
Ástæðan er stórleikur Englands og Noregs sem fram fer sama kvöld og margir Íslendingar ætla sér að fylgjast með. Greifarnir vilja því gefa fólki tækifæri til að horfa á leikinn fyrst og mæta svo beint á ball í Stapa á eftir.
Forsala miða er á Tix.is og einnig verða miðar seldir við innganginn.






