K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Mannlíf

Marglaga mynstur Gunnhildar Þórðardóttur í Listasal Mosfellsbæjar
Miðvikudagur 1. júlí 2026 kl. 09:44

Marglaga mynstur Gunnhildar Þórðardóttur í Listasal Mosfellsbæjar

— verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur í Listasal Mosfellsbæjar  3.júlí -7.ágúst

Á sýningunni Marglaga mynstur í Listasal Mosfellsbæjar sem verður opnuð föstudag 3.júlí eru ný verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur.  Í sýningunni skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar, hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða hverful. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir bæði náttúru og tilveru mannsins ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.
Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, strigum, plasti og málmi. Þannig umbreytir hún efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í nýja myndræna heild. Sýningin er opin alla virka daga frá 9-18 og stendur til 7. ágúst. Á opnunni mun listamaðurinn lesa ný ljóð og halda listamannaspjall síðasta sýningardag kl.14.

Gunnhildur Þórðardóttir hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið. Á opnuninni mun Gunnhildur lesa upp úr nýjum ljóðum sínum.


Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar