Hlakkar til að takast á við verkefnin í Suðurnesjabæ
Senn líður að því að Alexandra Jóhannesdóttir taki við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Í kveðju til íbúa á vef sveitarfélagsins segir hún það mikinn heiður og ábyrgð að fá þetta tækifæri og hlakkar hún til að kynnast samfélaginu betur á næstu vikum og mánuðum.
Alexandra segist í pistli sínum alla tíð hafa haft mikinn áhuga á samfélagsþróun og uppbyggingu innviða. Hún vísar meðal annars í nýlegan pistil sinn um mikilvægi hafna en bendir á að hugsunin þar að baki eigi við um samfélagið allt: að byggja á styrkleikum sínum og skapa forsendur fyrir verðmætasköpun og auknum lífsgæðum.
Hlakkar til að hitta íbúa og heimsækja fyrirtæki
Fram undan er tími kynninga en Alexandra stefnir á að hitta sem flesta á næstunni.
„Á næstu vikum og mánuðum hlakka ég til að kynnast samfélaginu, hitta sem flesta og heimsækja starfsstöðvar, fyrirtæki og stofnanir. Hver sá sem býr og starfar í Suðurnesjabæ hefur mikilvæga sýn á sitt samfélag og á þá framtíð sem við viljum byggja,“ segir Alexandra.
Telur sveitarfélagið eiga mikla möguleika
Að mati verðandi bæjarstjóra á Suðurnesjabær að vera í fremstu röð sveitarfélaga hér á landi. Til þess þurfi að nýta þá styrkleika sem þegar eru til staðar, vinna markvisst að sameiginlegum markmiðum og skapa umhverfi þar sem hugmyndir fá að verða að veruleika.
„Þegar við byggjum á því sem sameinar okkur, tölum af metnaði fyrir hönd sveitarfélagsins og vinnum saman að skýrri framtíðarsýn, skapast bestu forsendurnar fyrir áframhaldandi sókn. Ég trúi því að sá tími sé núna,“ segir Alexandra að lokum og óskar íbúum gleðilegs sumars.






