Fréttir

Kerfisbreytingar með of skömmum fyrirvara
Laugardagur 4. júlí 2026 kl. 04:35

Kerfisbreytingar með of skömmum fyrirvara

Bæjarstjórn Voga lýsir yfir þungum áhyggjum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur tekið undir harðorða bókun bæjarráðs þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum og vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á nýlögfestum breytingum á opinberu eftirliti. Um er að ræða umfangsmiklar kerfisbreytingar á verkefnum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja (HES) sem munu hafa mikil áhrif á sveitarfélagið, íbúa þess og atvinnulíf.

Í bókuninni, sem fyrst var afgreidd í bæjarráði í kjölfar minnisblaðs frá Ásmundi E. Þorkelssyni, framkvæmdastjóra HES, segir að það sé verulegt áhyggjuefni að svo stórtækar breytingar komi til framkvæmda með jafn skömmum fyrirvara og raun ber vitni.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Krefjast þess að lögbundin þjónusta verði tryggð

Bæjarráð og bæjarstjórn leggja ríka áherslu á að stjórnvöld tryggi að lögbundin þjónusta verði óskert allt til ársloka og að yfirfærsla verkefna og gagna verði fyllilega örugg. Þá er þess krafist að upplýsingagjöf til starfsfólks verði skýr og að fjárhagslegt uppgjör vegna breytinganna verði vandað.

„Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á þeim breytingum sem nú hafa verið lögfestar á mikilvægum eftirlitsverkefnum... Bæjarráð telur verulegt áhyggjuefni að svo umfangsmiklar kerfisbreytingar komi til framkvæmda með svo skömmum fyrirvara,“ segir í bókuninni.

Horft til framtíðar eftir áramót

Bæjarstjóra hefur verið falið að vinna málið áfram í nánu samráði við HES og önnur aðildarsveitarfélög á Suðurnesjum. Fram undan er vinna við að kortleggja nákvæmlega hvaða verkefni munu standa eftir hjá sveitarfélögunum eftir 1. janúar 2027 og tryggja að framkvæmd opinberra eftirlitsverkefna verði óslitin.

Sveitarfélagið Vogar lýsir jafnframt yfir fullum vilja til samstarfs við önnur sveitarfélög um rekstur þeirra verkefna sem áfram verða á herðum sveitarfélaganna eftir að breytingarnar taka gildi um næstu áramót.