Jafntefli hjá Keflavík og Fram
Keflavík og Fram gerðu 1–1 jafntefli í Bestu deild karla á HS Orku vellinum í kvöld. Frammarar stýrðu spilinu stóran hluta fyrri hálfleiks en hvorugu liðinu tókst að skora fyrir hlé. Alpha Conteh fékk besta færi Keflvíkinga á 28. mínútu þegar hann komst framhjá Viktori Frey í marki Fram en skaut framhjá opnu marki.
Gestirnir opnuðu markareikninginn á 54. mínútu. Frederico Bello Saraiva tók þá aukaspyrnu og sendi boltann inn á teiginn á Kennie Knak Chopart, sem lyfti boltanum yfir Ásgeir Orra í marki Keflavíkur.
Keflavík jafnaði metin á 68. mínútu. Eiður Orri Ragnarsson átti þá fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Stefan Alexander Ljubicic skallaði boltann í netið.
Bæði lið fengu tækifæri til að skora fleiri mörk það sem eftir lifði leiks. Ægir Jarl átti skot fyrir Fram sem fór af varnarmanni og naumlega framhjá og Muhamed Alghoul átti aukaspyrnu fyrir Keflavík á 90. mínútu sem fór rétt yfir markið. Leiknum lauk því með jafntefli og Keflavík er komið upp í 6. sæti deildarinnar eftir leik kvöldsins.
Viðtal við Stefan er í spilaranum hér að neðan.






