Haraldur þjálfari: Sanngjarnt jafntefli
Haraldur Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var tiltölulega sáttur við eitt stig eftir 1–1 jafnteflið gegn Fram í Bestu deild karla á heimavelli í kvöld. Hann segir liðið hafa fengið góð tækifæri til að skora fleiri mörk en telur niðurstöðuna gefa rétta mynd af leiknum.
„Við fáum þrjú mjög góð tækifæri til þess að skora mark en nýtum þau ekki í dag. Svo erum við smá sofandi í seinni hálfleik þegar þeir skora, en við komum til baka og skorum gott mark,“ sagði Haraldur m.a. í samtali eftir leik. Hann lýsti yfir ánægju með framlag framherjans Stefans Alexander Ljubicic og lánsmarannsins Alpha Conteh, en sagði Keflvíkinga heilt yfir hafa viljað vera með aðeins fleiri stig á þessum tímapunkti mótsins miðað við frammistöðu.
Sjáðu viðtalið við Harald í heild sinni í spilaranum hér að neðan:





