Fréttir

Þjónustuaðilar hvattir til að undirbúa sig fyrir sólmyrkvann
Miðvikudagur 8. júlí 2026 kl. 09:21

Þjónustuaðilar hvattir til að undirbúa sig fyrir sólmyrkvann

Allt gistirými uppselt á Reykjanesi

Reykjanesskagi stefnir í að verða einn vinsælasti áfangastaður landsins þann 12. ágúst næstkomandi, þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Allt skráð gistirými á svæðinu er þegar uppselt.

Málið var til umræðu á síðasta fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar, þar sem Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, fór yfir stöðuna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Þar sem almyrkvinn mun standa lengur yfir á Reykjanesskaga en víða annars staðar á landinu er búist við gríðarlegum fjölda gesta á svæðið þennan dag. Í fundargerð ráðsins segir að gera megi ráð fyrir verulega aukinni umferð og mikilli ásókn í alla almenna þjónustu, svo sem veitingastaði, verslanir og bensínstöðvar.

Einstakt tækifæri fyrir svæðið

Atvinnu- og hafnarráð hefur sent ríka hvatningu til fyrirtækja, stofnana og annarra þjónustuaðila á Suðurnesjum um að bregðast við og undirbúa sig vel undir fólksfjöldann.

Ráðið hvetur rekstraraðila til að fara sérstaklega yfir opnunartíma og mönnun, bæði á sjálfum viðburðardeginum og dagana í kring, til að mæta þeirri miklu eftirspurn sem fyrirséð er. Er því beint til fólks að tryggja gott aðgengi og taka vel á móti gestum, enda sé almyrkvinn einstakt tækifæri til að sýna gestrisni, öfluga þjónustu og skapa ferðamönnum eftirminnilega upplifun á svæðinu.