Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Siðareglum breytt í Suðurnesjabæ
Miðvikudagur 8. júlí 2026 kl. 09:05

Siðareglum breytt í Suðurnesjabæ

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða breytingu á siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa í sveitarfélaginu.

Breytingin, sem lögð var fram af fulltrúum D- og S-lista, lýtur að 11. grein reglnanna sem fjallar um ágreining og brot.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Samkvæmt nýju reglunni verða mál sem varða ágreining, brot á siðareglum eða trúnaðarbrest tekin fyrir sem trúnaðarmál í bæjarráði. Þar verður málunum fundinn faglegur og málefnalegur farvegur og þeim vísað áfram til siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Breytingin hefur verið samþykkt af bæjarráði og hefur verið vísað áfram til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.

Eignasalan
Eignasalan