Pétur G. Markan tekinn við sem bæjarstjóri í Grindavík
Pétur G. Markan tók í dag formlega við starfi bæjarstjóra í Grindavík. Hann tekur við embættinu af Fannari Jónassyni.
Í tilkynningu frá Grindavíkurbæ er Pétur boðinn velkominn til starfa. Um leið eru Fannari Jónassyni færðar þakkir fyrir mikilvæg störf hans og framlag í þágu Grindavíkur og Grindvíkinga á undanförnum árum.
Fannar lætur nú af störfum eftir að hafa stýrt sveitarfélaginu í gegnum mikla umbrotatíma á síðustu misserum.





