Fréttir

Grindavíkurvegi lokað tímabundið vegna malbikunar
Miðvikudagur 8. júlí 2026 kl. 14:38

Grindavíkurvegi lokað tímabundið vegna malbikunar

Bent á hjáleiðir

Grindavíkurvegi verður lokað að hluta á fimmtudag og föstudag (9. og 10. júlí) vegna malbikunarframkvæmda við hringtorgið við Vogastapa, sunnan Reykjanesbrautar.

Lokanirnar munu standa yfir á eftirfarandi tímum:

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
  • Fimmtudaginn 9. júlí: Kl. 12:00–16:00
  • Föstudaginn 10. júlí: Kl. 9:00–16:00

Á meðan framkvæmdunum stendur verður Grindavíkurvegi lokað á kaflanum á milli Reykjanesbrautar og Bláa Lónsins.

Vegfarendum sem eiga leið til eða frá Grindavík er bent á að nota Hafnaveg/Nesveg eða Krýsuvíkurveg/Suðurstrandarveg á meðan lokanirnar eru í gildi. Ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát og gera ráð fyrir lengri aksturstíma en vanalega.

Eignasalan
Eignasalan