Fannar Jónasson leiðir nýtt umbóta- og hagræðingarteymi Reykjanesbæjar
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi. Markmið teymisins er að auka skilvirkni stjórnsýslunnar, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. Verkefnið er liður í stefnu nýs meirihluta um heildstæða endurskoðun á rekstri bæjarins.
Fannar leiðir lykilverkefni
Reykjanesbær hefur gert verktakasamning við Fannar Jónasson, einn af reynslumeiri sveitarstjórnarmönnum landsins, til þess að leiða þetta verkefni. Fannar hefur áratugalanga reynslu af stjórnun sveitarfélaga og mun gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna bæjarins.
Meðal verkefna Fannars verður að:
-
Stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun.
-
Fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir.
-
Leggja mat á frekari greiningar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna.
-
Veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld.
Þverfaglegt teymi skipað sérfræðingum
Umbóta- og hagræðingarteymið verður tímabundið og skipað starfsfólki og stjórnendum með ólíka sérþekkingu.
Fannar mun starfa í nánu samstarfi við bæjarstjóra. Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, mun samræma samstarf við formenn ráða og nefnda. Andri Örn Víðisson mun leiða verkefni er snúa að þróun stjórnsýslunnar og stafrænni umbreytingu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra, verður teyminu til aðstoðar ásamt fulltrúum fjármála- og mannauðssviðs.
Skýr sýn á framtíðina og þegar mælanlegur sparnaður
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að þegar hafi verið stigin mikilvæg skref í átt til sparnaðar á fyrstu vikum nýs meirihluta:
„Við höfum þegar sýnt að við ætlum að fara vel með skattfé íbúa. Á fyrstu vikunum fækkuðum við pólitískum nefndum og ráðum og spöruðum sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Við höfum jafnframt lækkað laun bæjarstjóra sem skilar 4–5 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum króna lægri á ári, að meðtöldum launatengdum gjöldum, en greidd voru fyrir aðstoðarmann bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili.“
Vilhjálmur segir þetta hafa verið fyrstu skrefin en nú taki við næsti áfangi þar sem áfram verður haldið að bæta reksturinn og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði. Markmiðið með vinnu teymisins er að einfalda stjórnsýsluna, stytta boðleiðir og byggja upp öflugra sveitarfélag þar sem fjármunum íbúa er ráðstafað af ábyrgð.







