Flott byrjun hjá ÍRB-ingum á danska meistaramótinu
Þrír öflugir sundmenn frá Sundráði ÍRB hófu í morgun keppni á Danska meistaramótinu í 50 metra laug, sem fram fer í Herning næstu fjóra dagana. Þau Daði Rafn Falsson, Eva Margrét Falsdóttir og Guðmundur Leo Rafnsson skipa hópinn og fór fyrsti keppnisdagurinn frábærlega af stað.
ÍRB-ingar syntu tvö sund í morgunsárið og skiluðu þau bæði persónulegum bætingum.
Bætingar og strangar úrslitareglur
-
Daði Rafn Falsson reið á vaðið í 200m flugsundi og stórbætti sinn besta tíma um tæplega tvær sekúndur. Sá flottu tími hefði venjulega dugað honum inn í C-úrslit. Strangar reglur mótsins settu hins vegar strik í reikninginn, en aðeins tveir erlendir keppendur mega synda í úrslitum og komst Daði því miður ekki áfram að þessu sinni af þeim sökum.
-
Guðmundur Leo Rafnsson keppti í 50m skriðsundi. Hann bætti sinn persónulega árangur og tryggði sér sæti í B-úrslitum sem fara fram síðar í dag.







