Íþróttir

Veglegur liðsstyrkur til Grindavíkurkvenna en karlalið UMFN missir sinn besta mann
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 8. júlí 2026 kl. 12:57

Veglegur liðsstyrkur til Grindavíkurkvenna en karlalið UMFN missir sinn besta mann

Grindvíkingar hafa fengið hina nýsjálensku landsliðskonu Tegan Graham til liðsins en hún á glæstan körfuboltaferil að baki. Þá sjá Njarðvíkingar að baki Dwayne Lautier-Ogunleye, eins besta leiksmanns karlaliðsins síðasta tímabil, hann er farinn til Valsmanna.

Tegan er að sögn Grindvíkinga fjölhæfur framherji og þekkt fyrir kænsku á velli, nákvæm þriggja stiga skot, óeigingjarnan leikstíl og framúrskarandi sendingagetu.

Tegan er landsliðskona Nýja-Sjálands og kemur til Grindavíkur með dýrmæta reynslu af leik á alþjóðlegum vettvangi. Hún lék síðast með Perth Lynx í áströlsku WNBL-deildinni, einni sterkustu kvennadeild heims. Þar áður átti hún frábært tímabil í Þýskalandi þar sem hún var valin bæði verðmætasti leikmaður deildarinnar og úrslitakeppninnar eftir að hafa leitt lið sitt til sigurs í 2. Bundesligunni.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Njarðvíkingar munu eflaust saknka Lautier-Ogunleye en hann lék með Njarðvík síðustu þrjú tímabil og var alltaf meðal stigahæstu leikmanna deildarinnar.

Á síðustu leiktíð skoraði hann 25 stig að meðaltali og var stigahæsti leikmaður deildarinnar.

Eignasalan
Eignasalan