Ellefu ára Sandgerðingur vann söngvakeppnina á Þjóðhátíð
Hjörtur Leó Hildarson, ellefu ára Sandgerðingur vann söngvakeppni barna á Þjóðhátíð í Eyjum. Hjörtur flutti hið vinsæla lag „Kominn heim“ eftir Kristmund Axel.
Greint er frá úrslitunum á lokakvöldi hátíðarinnar en keppt er í yngri og eldri flokki. Sigurvegararnir flytja svo lagið á stóra sviðinu við upphaf lokakvöldsins í dalnum. Hjörtur gerði það mjög vel, söng lagið og lék á gítar og hvatti þjóðhátíðargesti til að taka undir. Ungi Sandgerðingurinn hagaði sér á sviðinu eins og hann hefði oft verið þar. Hann hefur lært sjálfur á gítarinn og nokkuð ljóst að hann eigi eftir að munda hann oft í framtíðinni.
„Þeir sem fóru á Akureyri missa af mér. Þjóðhátíð er alltaf þjóðhátíð,“ sagði ungi söngvarinn á sviðinu þegar hann var kynntur til leiks.
Þetta er í annað sinn í röð sem Suðurnesjamaður sigrar í Söngvakeppninni. Í fyrra vann Birkir Frosti Kjartansson í eldri flokki.
Í myndskeiðinu má sjá flutning Hjartar sem hefst 1:53:00.







