Mannlíf

„Alltaf gott veður á miðvikudögum“
Miðvikudagur 22. júlí 2026 kl. 10:13

„Alltaf gott veður á miðvikudögum“

Eftir fimmtán ára farsælt starf við Reykjanesgönguferðir ætlaði Rannveig L. Garðarsdóttir hálfpartinn að fara að hægja á sér. Í júní mættu hún og systir hennar, Þórey, hins vegar galvaskar til leiks á nýjan leik og leiddu fjölda fólks um breytt og magnað landslag á skaganum. Þráðurinn verður mögulega tekinn upp aftur í haust.

„Ég var búin að lofa mér að verða ekki níræð hlaupandi um Reykjanesskagann, en það stefnir allt í það,“ segir Rannveig í léttum tón þegar hún er spurð út í endurkomuna í júní.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hún segir göngurnar fjórar hafa gengið vonum framar en um 20 til 30 manns mættu í hverja ferð. Göngurnar voru skipulagðar í samstarfi við Björgunarsveitina Suðurnes, sem átti dygga fulltrúa í hópnum. „Það var svo góð þátttaka hjá þeim, sem hvetur mig bara áfram. Það er aldrei að vita nema við gerum þetta aftur í haust.“

Þjóðsögur og kaffisopi í nýju umhverfi

Þær Garðarsdætur leggja ríka áherslu á að göngufólk fái eitthvað fyrir sinn snúð þegar kemur að fræðslu, jarðfræði og sögu svæðisins.

„Við byrjum alltaf á að lýsa ferðinni, umhverfinu og örnefnum. Svo stoppum við tvisvar á leiðinni. Í fyrra kaffistoppinu segjum við sögur og lesum alltaf þjóðsögu, og svo er annað stopp á leiðinni heim. Fólk hefur ofsalega gaman af þessu,“ segir Rannveig.

Hún bætir því við, með vísan í langa reynslu, að það klikki nánast aldrei að það sé blíðskaparveður þegar gengið er á miðvikudagskvöldum á Reykjanesskaganum. Júnímánuður hafi sannað þá reglu enn og aftur.

Saknar gamla Skógfellsvegarins

Náttúruöflin hafa látið rækilega á sér kræla á Reykjanesskaganum á undanförnum árum og hefur landslagið breyst mikið síðan systurnar leiddu fyrst hópa þarna reglulega. Rannveig segir nýju hraunin og risastóru varnargarðana gera svæðið jafnvel enn magnaðra en áður, þótt vissrar eftirsjár gæti að gömlum slóðum.

„Ég sakna gamla Skógfellsvegarins mjög mikið, sem lá frá Grindavík með Sundhnúkagígaröðinni og að Stóra-Skógfelli. Hann er farinn að stórum hluta undir hraun. Eins er umhverfið við Hagafell og Þorbjörn mikið breytt og mikið hrunið úr Gálgaklettunum. Það er alveg fullt af hlutum sem maður saknar, en á sama tíma er þetta nýja umhverfi alveg ótrúlega áhugavert.“

Baka rúgbrauð í Gunnuhver

Þær systur eru samhentar í útivistinni en Þórey útskrifaðist nýverið úr leiðsögunámi, tók meiraprófið og vinnur við að ganga með ferðamenn á Fagradalsfjall. Þá eru þær systur alltaf með eitthvað á prjónunum.

„Við erum alltaf í einhverjum pælingum. Við höfum verið að baka rúgbrauð úti í Gunnuhver og taka á móti sérstökum hópum þar. Það er bara virkilega gaman að bralla þetta saman,“ segir Rannveig að lokum.

Reykjanesgönguferðir í júní 2026

Eignasalan
Eignasalan