Eignasalan
Eignasalan

Mannlíf

Hvers vegna stendur stelkurinn á einum fæti?
Þriðjudagur 21. júlí 2026 kl. 09:53

Hvers vegna stendur stelkurinn á einum fæti?

Á þessari mynd frá Stafnesi hefur stelkurinn tyllt sér á veðraðan vegvísi sem markar forna gönguleið í Ósabotna.

Margir velta fyrir sér hvers vegna þessir vaðfuglar standa svo oft á öðrum fæti. Ástæðan er afar hagnýt. Með því að draga annan fótinn upp í dúninn helminga þeir hitatapið í köldum vindi og bleytu. Sérstakt sinakerfi læsir liðnum sjálfkrafa svo þeir geta hvílst eða sofið á einum fæti án þess að nota vöðvaorku.

Stelkurinn er kallaður „varðhundur mýrarinnar“ og elskar að nota svona staura sem útsýnisstaði til að fylgjast með umhverfinu og vara aðra við gestum á gönguleiðinni. VF/hilmarbragi

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Eignasalan
Eignasalan