Eignasalan
Eignasalan

Mannlíf

Sólmyrkvaævintýri í Reykjanesbæ: Boðið til „Myrkvastundar“ á fjórum stöðum!
Sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg þann 12. ágúst næstkomandi. VF/hilmarbragi
Miðvikudagur 15. júlí 2026 kl. 11:08

Sólmyrkvaævintýri í Reykjanesbæ: Boðið til „Myrkvastundar“ á fjórum stöðum!

Miðvikudaginn 12. ágúst fáum við að upplifa einstakt og magnað augnablik í Reykjanesbæ. Daginn mun dimma um stund þegar almyrkvi á sólu gengur yfir landið.

Af þessu sögulega tilefni býður Reykjanesbær íbúum og gestum til Myrkvastundar – stórglæsilegs almyrkvaviðburðar sem fram fer á fjórum mismunandi stöðum í bænum. Tónlist, fræðsla og fjölbreytt dagskrá munu skapa ógleymanlega upplifun fyrir alla aldurshópa á meðan náttúran sjálf tekur sviðið og sýnir sínar allra bestu hliðar.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Stórar eftirlíkingar af sólmyrkvagleraugum munu marka hvern viðburðastað svo auðvelt verður að finna þá. Dagskráin á öllum stöðum fer fram á milli kl. 17:00 og 18:30.

Dagskrá og staðsetningar

Hér má sjá hvar fjörinu verður stýrt og hvað verður í boði á hverjum stað. Finndu þann stað sem hentar þér og þinni fjölskyldu best!

1. Við Kamb í Innri Njarðvík
  • Tónlist: DJ Mellí heldur uppi stemningunni.

  • Pop-up viðburður: Júlí Mjöll mætir á svæðið.

  • Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin sjá um að enginn fari svangur heim og bjóða upp á skemmtilega afþreyingu.

  • Stjörnufræðsla: Sævar Helgi (Stjörnu-Sævar) leiðir gesti í gegnum upplifunina með hljóðupptökum þar sem hann miðlar áhugaverðum fróðleik um almyrkvann.

2. Í Skrúðgarðinum í Ytri Njarðvík
  • Tónlist: DJ Lexi sér um taktinn.

  • Pop-up viðburður: Margrét Lilja verður með skemmtilega uppákomu.

  • Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin mæta með fjölbreytta afþreyingu og veitingasölu.

  • Stjörnufræðsla: Stuttar hljóðupptökur frá Sævari Helga sem útskýra undur sólmyrkvans á meðan hann á sér stað.

3. Í Holtunum ofan við Holtaskóla
  • Tónlist: DJ Ragga Hólm þeytir skífum og tryggir góðan straum.

  • Pop-up viðburður: Marta Eiríks mætir með tónlist og takt.

  • Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin sjá um ljúffengar veitingar og afþreyingu fyrir hópinn.

  • Stjörnufræðsla: Sævar Helgi fræðir gesti með hljóðupptökum sem spilaðar verða á svæðinu.

4. Við Ráðhúsið á Ásbrú
  • Tónlist: DJ Sóley heldur uppi stuðinu fyrir gesti og gangandi.

  • Pop-up viðburður: Sara Dögg mætir með spennandi pop-up viðburð.

  • Veitingar & afþreying: Íþróttafélögin mæta á svæðið með sölu og fjör.

  • Stjörnufræðsla: Fróðleikur og innsýn í almyrkvann beint úr hljóðupptökum frá Sævari Helga.

Hagnýtar upplýsingar fyrir gesti

Til þess að upplifunin verði sem allra best hvetjum við íbúa og gesti til að hafa eftirfarandi í huga:

Skildu bílinn eftir heima: Ef kostur er hvetjum við fólk til að ganga eða hjóla á viðburðinn til að draga úr umferð og njóta ferska loftsins.

Mundu eftir gleraugunum: Öryggið er í fyrirrúmi! Nauðsynlegt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu til að horfa á sólina meðan á myrkvanum stendur.

Komdu þér vel fyrir: Taktu með þér hlýtt teppi, útilegustól og klæddu þig eftir veðri svo hægt sé að njóta stundarinnar í botn.

Eignasalan
Eignasalan