Mannlíf

Sprotar: listamannaspjall og ljóðalestur á laugardag
Miðvikudagur 29. júlí 2026 kl. 11:22

Sprotar: listamannaspjall og ljóðalestur á laugardag

Marglaga mynstur - lokahóf og listamannaspjall föstudag 7. ágúst kl.16-18

Á sýningunum Sprotar í sal Sambands íslenskra myndlistarmanna og Marglaga mynstur í Listasal Mosfellsbæjar eru ný þrívíð og tvívíð verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Á sýningunum skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar sérstaklega í byggingum og hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða breytileg. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir borgarlandslagið ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.

Næstkomandi laugardag 1.ágúst kl.12-16 mun Gunnhildur taka á móti gestum í SÍM í spjall og ljóðalestur og föstudag 7.ágúst mun listamaðurinn taka á móti gestum í lokahóf og listamannaspjall kl.16-18 í Listasal Mosfellsbæjar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, strigum, timbri, plasti, textíl og málmi. Þannig umbreytir listamaðurinn efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í ný verk með litum og formfræði að leiðarljósi sem sprettur af samspili margra miðla. Sýningin Sprotar í SÍM er opin frá 10-15 mánudaga til fimmtudaga og stendur til 4. Ágúst en Marglaga mynstur í Listasal Mosfellsbæjar er opin alla virka daga frá 9-18 og stendur til 7.ágúst.

Gunnhildur Þórðardóttir-Place hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið.


Eignasalan
Eignasalan