Bæjarráð hrósar MSS fyrir mikilvægt starf í þágu samfélagsins
Ársskýrsla og ársreikningur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum (MSS) fyrir árið 2025 voru lögð fram til kynningar á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Bæjarráð þakkaði fyrir vandaða og upplýsandi skýrslu og lýsti yfir ánægju með það starf sem fram fer hjá stofnuninni. Í umsögn bæjarráðs kemur fram að skýrslan sýni glöggt hversu mikilvægu hlutverki MSS gegnir við að efla menntun, starfsþátttöku og samfélagslega virkni íbúa á svæðinu.
Sérstaklega var vakin athygli á því hversu vel hafi til tekist að samþætta námsráðgjöf, endurhæfingu og menntun með raunverulegum árangri fyrir einstaklinga.
Að lokum undirstrikaði bæjarráð mikilvægi þess að Reykjanesbær haldi áfram að efla samstarf sitt við MSS í framtíðinni, enda sé starfsemin ekki aðeins stórt menntamál heldur einnig mikilvægt velferðar- og atvinnumál fyrir samfélagið allt.






