Íþróttir

Sveindís á skotskónum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 27. júlí 2026 kl. 11:39

Sveindís á skotskónum

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði annað mark sitt fyrir Angel City í 1-2 tapi gegn Racing Louisville í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum í gær.

Sveindís minnkaði muninn fyrir Angel City en liðið náði ekki að jafna leikinn.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þetta var annað mark Keflvíkingsins á þessari leiktíð og þriðja í síðustu fjórum leikjum. Hún er markahæst ásamt hinni brasilísku Niehus Maiara, með sex mörk. Þá hefur Sveindís átt tvær stoðsendingar sem hafa skilað marki.

Angel City er í 8. sæti deildarinnar af sextán liðum.

Eignasalan
Eignasalan