Fréttir

Tveir sátu hjá við ráðningu bæjarstjóra Grindavíkur
Laugardagur 25. júlí 2026 kl. 14:25

Tveir sátu hjá við ráðningu bæjarstjóra Grindavíkur

Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þeir Hjálmar Hallgrímsson og Ómar Davíð Ólafsson, sátu hjá þegar ráðningarsamningur við nýjan bæjarstjóra, Pétur G. Markan, var lagður fram til staðfestingar á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur þann 7. júlí.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Bæjarstjórn staðfesti ráðningarsamninginn með fimm atkvæðum. Þau Ásrún Helga Kristinsdóttir, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Inga Fanney Rúnarsdóttir, Þorleifur Ólafsson og Magnús Már Jakobsson staðfestu ráðningarsamninginn en Hjálmar Hallgrímsson og Ómar Davíð Ólafsson sátu hjá eins og áður segir.

„Það er náttúrulega alveg greinilega ekki eining um ráðningu bæjarstjóra. Við vorum ekki alveg sammála um ráðninguna og það liggur alveg ljóst fyrir. Þar af leiðandi sitjum við bara hjá,“ sagði Hjálmar Hallgrímsson í samtali við mbl.is um málið.

Hjálmar hefði fremur viljað sjá annan umsækjanda ráðinn í starf bæjarstjóra næstu árin. „Það var möguleiki á öðru en það er bara eins og það er. Það var meiri hluti fyrir þessu þó við værum ekki sammála og þess vegna sátum við nú bara hjá,“ segir Hjálmar jafnframt.

Pétur var valinn úr hópi 23 umsækjenda um starfið. Við val á nýjum bæjarstjóra var lögð áhersla á leiðtogahæfni, farsæla stjórnunarreynslu, þekkingu á opinberri stjórnsýslu og getu til að leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, starfsfólk sveitarfélagsins, íbúa, atvinnulíf og stjórnvöld.

Pétur starfaði síðast sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þar áður gegndi hann embætti biskupsritara og stýrði samskiptamálum þjóðkirkjunnar. Hann var áður sveitarstjóri Súðavíkurhrepps um fimm ára skeið og hefur jafnframt gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila.

„Við erum afar ánægð með að fá Pétur til starfa í Grindavík. Fram undan eru stór og mikilvæg verkefni við áframhaldandi endurreisn samfélagsins og við teljum að reynsla hans, þekking og leiðtogahæfni muni nýtast sveitarfélaginu afar vel. Við hlökkum til samstarfsins á þessum mikilvægu tímamótum,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar.

Eignasalan
Eignasalan