Reyna að fella þriðju bygginguna í Helguvík
Byggingar kísilvers United Silicon í Helguvík falla nú hver á fætur annarri. Þessa dagana er verið að fella þriðju bygginguna.
Það hefur þó ekki gengið þrautalaust og var unnið fram á nótt án þess að byggingin myndi falla á hliðina.
Vinna er aftur hafin á framkvæmdasvæðinu og því stóra spurningin hvort byggingin falli ekki dag.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í gærkvöldi af niðurrifinu.






