Vill háskóla í Voga: Ungur íbúi kom bæjarstjóra á óvart
Það vantar ekki metnaðinn í unga fólkið í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, nýr bæjarstjóri Voga, komst að því á dögunum þegar ungur drengur mætti til hennar með nokkuð óvenjulega en afgerandi ósk.
Björg Ásta hefur staðið í ströngu síðustu vikur eftir að hún tók við embætti, enda mörg stór verkefni á borðinu hjá sveitarfélaginu. Í nýlegum pistli sínum til íbúa segir hún frá fjölmörgum góðum samtölum sem hún hefur átt við bæjarbúa á förnum vegi og í vikulegum viðtalstímum.
Eitt samtalið stóð þó upp úr fyrir frumleika sakir, en þar mætti ungur drengur og bað bæjarstjórann einfaldlega um að stofna háskóla í Vogum.
Hugsa stórt fyrir framtíðina
Þótt flestir bæjarstjórar glími jafnan við beiðnir um bætta götulýsingu, hraðahindranir eða betri leikskólapláss, fékk Björg Ásta þarna tækifæri til að líta lengra inn í framtíðina.
„Það er vissulega ekki lítil beiðni, en hún ber vott um metnað, bjartsýni og skemmtilega framtíðarsýn,“ segir Björg Ásta um samtalið við drenginn.
Hún segir beiðnina hafa verið frábæra hvatningu til þess að íbúar og bæjaryfirvöld leyfi sér að hugsa stórt þegar kemur að framtíð samfélagsins. Þótt háskóli sé kannski ekki á teikniborðinu alveg á næstu dögum, útilokar bæjarstjórinn ekkert til lengri tíma litandi:
„Og hver veit, kannski verður hugmyndin um háskóla í Vogum einn daginn ekki alveg jafn langsótt og hún kann að virðast í dag.“
Hér má lesa pistil bæjarstjóra í heild sinni:
https://www.vogar.is/is/stjornsysla/vogar/frettir/fra-baejarstjora






