Fréttir

Þjóðaratkvæðagreiðsla í Reykjanesbæ: Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 27. júlí
Eins og í sveitarstjórnarkosningunum í vor verða þrír kjörstaðir í Reykjanesbæ.
Miðvikudagur 22. júlí 2026 kl. 10:42

Þjóðaratkvæðagreiðsla í Reykjanesbæ: Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 27. júlí

Íbúar í Reykjanesbæ geta farið að búa sig undir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörskrá verður birt föstudaginn 24. júlí og utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 27. júlí.

Svarkostir á kjörseðlinum verða einfaldlega JÁ eða NEI.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Rétt til að kjósa hafa íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og eru með lögheimili á Íslandi. Erlendir ríkisborgarar hafa ekki kosningarrétt í þjóðaratkvæðagreiðslum.

Þrír kjörstaðir í stað eins

Athygli er vakin á því að í ár verða starfræktir þrír kjörstaðir í Reykjanesbæ. Skipting kjósenda fer eftir búsetu:

  • Keflavík og Njarðvík: Kosið verður í Fjölbrautarskóla Suðurnesja (FS).

  • Ásbrú og Hafnir: Kjörstaður verður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar (Grænásbraut 910).

  • Innri Njarðvík: Kosið verður í Stapaskóla.

Kjörstaðir verða almennt opnir frá kl. 09:00 til 22:00 á kjördag.

Utankjörfundur og aðstoð við kosningu

Kjósendur sem eiga þess ekki kost að mæta á kjördag geta kosið utan kjörfundar hjá sýslumönnum eða erlendis frá og með 27. júlí.

Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga.

Eignasalan
Eignasalan