Hvetja fyrirtæki til að búa sig undir gestaganginn
Allt skráð gistirými á Reykjanesi er þegar uppselt fyrir 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur frá Íslandi. Búist er við gríðarlegum fjölda ferðamanna og innlendra gesta á svæðið, enda er Reykjanesskagi einn eftirsóttasti áfangastaður landsins til að fylgjast með náttúruviðburðinum. Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hvetur staðbundin fyrirtæki til að bregðast við og undirbúa mönnun og opnunartíma fyrir þennan stóra dag.
Málið var tekið fyrir á fundi atvinnu- og hafnarráðs, sem haldinn var fimmtudaginn 25. júní síðastliðinn.
Einstakur viðburður
Almyrkvinn þann 12. ágúst verður sá fyrsti sem sést frá Íslandi síðan árið 1954 og er mikil eftirvænting á svæðinu. Reykjanesskagi þykir kjörinn vettvangur til áhorfs þar sem almyrkvinn mun standa þar lengur yfir en víðast hvar annars staðar á landinu.
Ráðið bendir á að auk þess sem hótel og gistiheimili séu þegar fullbókuð megi búast við miklum fjölda dagsferðamanna. Þessu mun fylgja mikil aukning á umferð og álagi á innviði, sem og gríðarleg ásókn í hvers kyns þjónustu á borð við veitingastaði, verslanir og bensínstöðvar.
Sýnum gestrisnina sem einkennir Reykjanes
Atvinnu- og hafnarráð hvetur fyrirtæki, stofnanir og aðra þjónustuaðila í Reykjanesbæ og nágrenni til að nýta tímann vel fram að ágúst og skipuleggja sig með tilliti til þessa mikla aðstreymis.
„Ráðið hvetur þjónustuaðila til að fara yfir opnunartíma og mönnun, bæði á viðburðardeginum og dagana í kring, með hliðsjón af þeirri auknu eftirspurn sem búast má við. Almyrkvinn er einstakt tækifæri til að sýna þá gestrisni og öflugu þjónustu sem einkennir Reykjanes og skapa gestum eftirminnilega upplifun,“ segir í áskorun ráðsins.
Lögð er áhersla á að tryggja gott aðgengi að þjónustu eftir fremsta megni svo hægt sé að taka sem best á móti þeim fjölmörgu gestum sem munu sækja svæðið heim.






