Nýr brimvarnagarður rís úr sæ í Njarðvík
Framkvæmdir við nýjan 470 m langan brimvarnargarð á suðursvæði Njarðvíkurhafnar ganga vel. Garðurinn er farinn að taka á sig mynd en það eru mörg handtök eftir þar sem verklok eru ekki fyrr en í júní á næsta ári.
Myndin var tekin í þarsíðustu viku þar sem unnið var að því að hlaða stórgrýti í enda brimvarnagarðsins.







