Fréttir

Brunavarnir Suðurnesja fá nýtt 6x6 torfærutæki í tækjaflotann
Miðvikudagur 22. júlí 2026 kl. 11:10

Brunavarnir Suðurnesja fá nýtt 6x6 torfærutæki í tækjaflotann

Brunavarnir Suðurnesja hafa tekið á móti nýju og öflugu torfærutæki af gerðinni Can-Am Traxter 6x6. Tækið er sérstaklega útbúið fyrir krefjandi verkefni, svo sem gróðurelda og önnur útköll á svæðum þar sem erfitt er um færð.

Nýja sexhjólið kemur í stað eldra tækis sem hefur þjónað slökkviliðinu vel á undanförnum árum. Með tilkomu Traxter-tækisins verður töluverð aukning á viðbragðsgetu liðsins þegar mest á reynir.

Helstu kostir nýja tækisins:

Aukin burðargetu: Auðveldar flutning á sérhæfðum búnaði á vettvang.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Betri torfærueiginleikar: Tryggir öruggara og hraðara aðgengi að krefjandi svæðum.

Góð aðstaða fyrir búnað: Veitir betra pláss og skipulag fyrir tækjabúnað slökkviliðsmanna.









Myndir: Brunavarnir Suðurnesja

Eignasalan
Eignasalan