Fréttir

Hart tekist á um sérbýlislóðir í Reykjanesbæ
Keflavíkurborgir fyrir miðri mynd. VF/hilmarbragi
Fimmtudagur 23. júlí 2026 kl. 10:09

Hart tekist á um sérbýlislóðir í Reykjanesbæ

- Minnihlutinn segir nóg til en meirihlutinn vill sækja fram

Skiptar skoðanir eru á milli meirihluta og minnihluta í bæjarráði Reykjanesbæjar um framboð og þörf á sérbýlislóðum í sveitarfélaginu. Ný samantekt skipulagsráðs um stöðu lóða var nýverið lögð fram og leiddi af sér nokkrar umræður og bókanir fulltrúa.
Samkvæmt samantektinni eru nú samtals 289 sérbýlishúsalóðir tilbúnar, í auglýsingu eða með samþykkt deiliskipulag í sveitarfélaginu. Þar af er um að ræða:

• 50 einbýlishúsalóðir

• 4 parhúsalóðir

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

• 169 raðhúsalóðir

Við þessar tölur bætast svo um 130 sérbýli í nýja hverfinu, Keflavíkurborgum, sem eru í vinnslu.
Minnihlutinn: „Sýnir að það er nóg af sérbýlishúsalóðum“
Fulltrúar minnihlutans, þær Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (Framsókn) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (Samfylkingu), fögnuðu niðurstöðum samantektarinnar og töldu þær staðfesta það sem þær hefðu áður haldið fram.
„Er niðurstaðan í takt við það sem við höfum statt og stöðugt haldið fram, það er til nóg af sérbýlishúsalóðum í Reykjanesbæ,“ segir í bókun þeirra.
Bentu þær á að þegar 130 sérbýli í Keflavíkurborgum bætast við muni hlutfallið hækka enn frekar.
Meirihlutinn: Ekki bara spurning um fjölda heldur fjölbreytileika
Fulltrúar meirihlutans, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson (Sjálfstæðisflokki) ásamt Gunnlaugi Kárasyni (Miðflokki), töldu yfirlitið hins vegar staðfesta mikilvægi þess að halda áfram markvissri vinnu við að fjölga sérbýlislóðum.
Meirihlutinn undirstrikaði í sinni bókun að málið snerist ekki einfaldlega um að telja saman lóðir, heldur um stærð, gerð og framboð húsnæðis:
„Það er ekki bara fjöldinn sem skiptir máli heldur stærð og tegund þess húsnæðis sem fyrirhugað er á lóðunum [...]. Markmiðið er ekki aðeins að telja saman lóðir heldur að tryggja stöðuga uppbyggingu, hraða skipulagsvinnu og reglulega úthlutun þannig að framboðið mæti eftirspurn.“
Lögðu fulltrúar meirihlutans áherslu á að skapa fjölskyldum raunverulegt val um búsetu og að fjölgun sérbýlislóða verði áfram eitt af þeirra helstu lykilverkefnum á kjörtímabilinu.
Eignasalan
Eignasalan