Íþróttir

Rosalegur endasprettur og læti í Njarðvík
Bragi Karl Bjarkason skorar sigurmarkið af stuttu færi. VF/hilmarbragi
Föstudagur 24. júlí 2026 kl. 22:18

Rosalegur endasprettur og læti í Njarðvík

Það var boðið upp á mikla spennu og mikinn hita þegar Njarðvík tók á móti HK í Lengjudeild karla. Leikurinn varð ævintýralegur á lokakaflanum og lauk með 3–2 sigri heimamanna, en lætin héldu áfram löngu eftir að flautað var til leiksloka. Með sigrinum er Njarðvík komið í 5. sæti deildarinnar.

Gestirnir í HK byrjuðu af krafti og Viktor Helgi Benediktsson kom þeim yfir strax á 5. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Valdimar Jóhannsson jafnaði metin fyrir Njarðvík á 18. mínútu, en Tumi Þorvarsson kom HK aftur yfir snemma í síðari hálfleik, aftur eftir hornspyrnu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Síðari hálfleikur einkenndist af miklum hita. Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, fékk rautt spjald á 56. mínútu fyrir mótmæli og fylgdist með lokakaflanum á bak við markið, þar til dómari leiksins sendi hann upp í stúku. Heimamenn létu það þó ekki á sig fá; Aron Einarsson jafnaði í 2–2 á 77. mínútu og á fyrstu mínútu uppbótartíma skoraði Bragi Karl Bjarkason sigurmarkið af stuttu færi.

Valdimar fékk gullið tækifæri til að bæta við fjórða markinu stuttu síðar en skaut í stöngina. Strax og Elías Ingi dómari flautaði leikinn af á 96. mínútu sauð upp úr á vellinum. Leikmenn og starfsmenn tókust á og fór að minnsta kosti eitt rautt spjald á loft, meðal annars á Oumar Diouck, leikmann Njarðvíkur – en óljóst er hvort fleiri hafi fengið að líta spjöld í látunum en skýrsla leiksins var ekki kominn á vefinn þegar þetta er skrifað.

Svipmyndir frá leiknum og þegar sauð uppúr í leikslok eru í myndasafni hér að neðan.

Njarðvík - HK 3:2 // Lengjudeild karla 2026

Eignasalan
Eignasalan